umræða um veiðigjöld.
Frú forseti. Þetta er áhugaverð umræða undir þessum daglega dagskrárlið, fundarstjórn forseta. Mig langar að vekja athygli forseta og þingheims á því að hér á eftir erum við að fara að ræða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta er eitt af þeim fjölmörgu málum sem hafa mjög jákvæðar afleiðingar út í samfélagið. Okkur gefst ekki almennilegt tóm til að ræða það mál og önnur vegna þess að hér ætla menn að hanga í umræðu um veiðigjöld og slá jafnvel hvert Íslandsmetið á fætur öðru. Það er bara staðreynd. Hér hafa verið leiknir tafaleikir. Hér hafa menn verið í málþófi og menn eru að kippa svolítið úr sambandi, finnst mér, þeim staðreyndum sem stundum koma fram í vinnu þingsins; mál fara í samráðsgátt, þau fara hér í 1. umræðu, slegið Íslandsmet, svo fer af stað nefndarvinna, það er tekið tillit til athugasemda, upplýsinga. Það er ekkert nýtt í því að hlutir breytist eftir því sem málum vindur fram. Það er í rauninni grundvöllur hinnar þinglegu meðferðar (Forseti hringir.) og samráðsgáttarinnar að svo sé.
Nú legg ég til að þingmenn stjórnarandstöðunnar (Forseti hringir.) fari að stytta mál sitt í veiðigjöldunum svo við getum farið að tala um hagsmuni fatlaðs fólks og annarra hópa hér úti sem virðast ekki mega koma á dagskrá þessa þings. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)