156. löggjafarþing — 70. fundur,  25. júní 2025.

umræða um veiðigjöld.

[11:10]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Varðandi ummæli hæstv. sitjandi forsætisráðherra á Facebook í gær þá er kannski minna rætt hér það sem snýr að því að þar lofar hæstv. ráðherra meira útsvari til sveitarfélaganna en það er nákvæmlega það í öllum umsögnum sem sveitarfélögin eru að vara við. Fjöldinn allur af sveitarfélögum í landinu, á landsbyggðinni, minni sveitarfélögum við ströndina, bæjum og þorpum — þar eru þetta 35–45% og upp í 50% af útsvari viðkomandi sveitarfélaga. Það er fullkomið skilningsleysi í því sem kemur fram í Facebook-færslu hæstv. ráðherra í gær. Síðan er það nú þannig að það hefði bara verið svo gott í þessu máli ef skattstjóri hefði komið fyrir atvinnuveganefnd strax og óskað var eftir því, til að fá þetta sannreynt. Þetta mál sem við höfum verið að fást við, og kom fram um mánaðamótin mars/apríl, (Forseti hringir.) er væntanlega eitt verst fram setta mál varðandi gögn og greiningar sem hefur komið fram lengi og hefur allur ferillinn sýnt það, enda erum við í þriðju uppfærslu á málinu.