umræða um veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég velti því fyrir mér hvort það væri ekki bara ágætt ef forseti myndi setja þingmenn í samfélagsmiðlabann um leið og hann tæki starfsáætlun úr sambandi svo að menn hefðu frið í þinginu og gætu farið að ræða mál sem skipta máli. Ég las reyndar yfir þessa færslu hæstv. ráðherra. Ég sé ekkert í þessu sem kemur illa við mig. Ég kem úr sveitarfélagi sem er fyrrverandi sjávarútvegssveitarfélag. Það var einu sinni mjög vel statt sjávarútvegssveitarfélag. Kannski gætu sveitarfélögin fengið eitthvað af þessum auknu álögum sem verið er að leggja á og þeim verði þá dreift til þeirra sveitarfélaga sem töpuðu kvótanum á sínum tíma. Við gætum þá séð einhvern jöfnuð í þeim hagnaði sem er að koma úr sjónum okkar (Forseti hringir.) og bætum þá þessum sveitarfélögum eitthvað upp af því sem þau hafa tapað.