umræða um veiðigjöld.
Forseti. Hér hafa menn talað í alls konar stíl, ég veit ekki hvort það sé falsfréttastíll hjá einhverjum, vonandi ekki. En hér hafa menn talað um þeytivindu, að hanga í umræðunni, mörg hundruð ræður, hv. þingmenn. En það er ekki lengra síðan en í gærkvöldi að starfandi forsætisráðherra, þrátt fyrir mörg hundruð ræður, þeytivindu og að hanga í umræðunni, ruglar saman útsvari og veiðigjaldi. Ég held að við þurfum að hanga hér mikið lengur og ég hvet bara stjórnarliða og ráðherra til að sitja hér á bekknum og hlusta á það sem við erum að segja. Þá væri ekki þessi misskilningur með grundvallarhugtök í þessu öllu saman. Starfandi forsætisráðherra talar um — ég bara minni á það að hér hófst umræðan með því að sveitarfélögin fengju fleiri hundruð milljónir í aukið útsvar. Þetta er eitthvað sem almenningur verður að átta sig á. Þetta er eins og að vera með eitthvað að heita og kalda vatninu og hún tekur rafmagnið úr sambandi, af því að þetta eru leiðslur allt saman. Þetta er ótrúlegt, ótrúleg umræða. (Gripið fram í.)