vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Ég er nýkomin heim af leiðtogafundi í Haag hjá Atlantshafsbandalaginu og geri mér grein fyrir því að í minni fjarveru hefur verið uppnám í þinginu. Það þykir mér auðvitað ekki gott. Ég ætla ekki að fara í hártoganir um gögn. Ég held að það hafi verið rætt nógu mikið um gögn hér inni. Það liggur hins vegar alveg fyrir að ég mun standa með mínum ráðherra. Ég mun standa með hæstv. ráðherrum, atvinnuvegaráðuneytinu og þeim upplýsingum sem þaðan koma. Það er ofboðslega mikilvægt að forsætisráðherra standi með þeim stofnunum sem eru að baki vinnu sem kemur í gegnum ráðuneyti og inn í þingið. Þegar ég tala um að mér hafi þótt upplýsingar fara fram og til baka þá er ég að vitna til þess að fyrir um tíu dögum síðan kemur yfirlýsing frá Skattinum, Fiskistofu, atvinnuvegaráðherra og -ráðuneyti þar sem þeim ber saman um ákveðin gögn. Í kjölfarið heldur áfram umræða um að þau gögn séu ekki þar sem þau eru. Ég veit hins vegar, sem mér finnst mjög jákvætt, að það var góður fundur í gær í hv. atvinnuveganefnd þar sem mér heyrist að fólk sé komið á sömu blaðsíðu. Ég held það skipti rosalega miklu máli vegna þess að við eigum að leyfa okkur að tala um pólitík en það er auðvitað ekki gott ef fólk getur ekki verið sammála um undirliggjandi þætti. Það var ekki mín ætlun að setja þingstörf í uppnám með mínum ummælum. Ég var hins vegar að lýsa minni upplifun af þeim samskiptum sem hér hafa farið á milli. Það er mín skylda og ég mun alltaf standa með hæstv. ráðherrum í minni ríkisstjórn og þeim opinberu stofnunum sem eru að vinna hér grunnvinnu. Það skiptir máli að þau skilaboð heyrist frá forsætisráðherra og þeirri ríkisstjórn sem hér situr. (Forseti hringir.) En endilega klárum þingveturinn, náum samningum og sköpum vinnufrið í þessum sal.