156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.

[10:06]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég varð fyrir örlitlum vonbrigðum með viðbrögð forsætisráðherra við spurningu minni því að mér finnast viðbrögð hennar skipta máli, ekki einungis fyrir hana heldur fyrir það traust sem Alþingi þarf að njóta á meðal almennings. Því að þingræði snýst ekki bara um lagasetningu og atkvæði, það byggist líka á vandari orðræðu, virðingu og trausti sem skapast þegar við sinnum hlutverkum okkar hér af heilindum. Við deilum ekki til að sundra heldur vegna þess að við berum ábyrgð. En orð ein og sér nægja ekki. Nú þurfum við að horfa fram á við og láta vinnubrögð okkar endurspegla þá virðingu sem við viljum að verði hér ríkjandi. Við í stjórnarandstöðunni erum tilbúin til þess og ég treysti því að forsætisráðherra, fyrir hönd stjórnarmeirihlutans, sé það líka, ekki bara í orði heldur einnig í verki.