156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

áhrif breytingar á veiðigjaldi.

[10:13]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Allt virðist þetta vera mjög á reiki enn þá. Hæstv. forsætisráðherra segir mikilvægt að vísa í gögn og það sé mjög jákvætt að málið hafi tekið breytingum í umræðunni og þar af leiðandi viðurkennir að það sé gagn af umræðu um það. En hæstv. forsætisráðherra sjálfur er enn óviss um áhrif frumvarpsins, heyrist mér. Við heyrðum nú að hæstv. félagsmálaráðherra, þá starfandi forsætisráðherra, hafði gjörsamlega misskilið málið og snúið þar öllu á hvolf í umræðunni á meðan hæstv. forsætisráðherra var í Haag. En af því að hæstv. forsætisráðherra lýsti sinni skoðun um baráttuna við þessar fjölskyldur, fjórar eða fimm, fáum við þá ekki alla vega að heyra skoðun hæstv. ráðherra á því hver áhrifin verða og hver sé ásættanlegur fórnarkostnaður í þeim slag? Væri ekki kannski bara rétt að upplýsa um hvaða einstaklingar þetta eru sem herferð þessi beinist gegn?