156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

áhrif breytingar á veiðigjaldi.

[10:14]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég taldi að það væri vilji í þessum sal að við myndum reyna að nálgast hlutina út frá sömu forsendum. Ég var að vitna í gær til fundar í hv. atvinnuveganefnd þar sem var jákvæðni í tón þeirra sem sátu þann fund vegna þess að fólk var komið á sömu blaðsíðu. Ég biðla til hv. þingmanns að við höldum okkur á þeirri blaðsíðu, að við komumst áfram en stígum ekki skref aftur á bak. Höldum okkur þá við það ef fólk hefur áhyggjur af áhrifunum af frumvarpinu byggt á þeim gögnum sem rætt var um í gær. Ég er alveg viss um þau gögn. Ég ætla að fullyrða það hér og það var sátt um þau gögn, skildist mér, í gær.

Varðandi þessar tölur þá veit ég alveg hvernig ákveðin hagnaðarhlutföll hafa verið reiknuð út, hvernig ákveðnum forsendum hefur verið stillt upp. Ég veit alveg að hlutirnir eru viðkvæmir á Vestfjörðum en ég veit líka að þar eru stór fyrirtæki og víða um land með 1, 2, 3 milljarða í hagnað og eru kannski að fá 100 milljónir í viðbót í veiðigjöld. Ég tel að þessi fyrirtæki geti ráðið við það án þess að það setji samfélögin á hausinn. (Forseti hringir.) En ég biðla til okkar að halda okkur á þeim stað að vera sammála um undirliggjandi gögn; ræðum svo um pólitíkina.