156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

úrræði í geðheilbrigðisþjónustu.

[10:16]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Forseti. 1. júní síðastliðinn var lokað á eina sérhæfða geðendurhæfingarúrræðið utan stofnana fyrir ungt fólk með alvarlegan og fjölþættan vanda, Janus endurhæfingu. Þar starfaði geðlæknir sem var í forsvari fyrir þverfaglegt teymi sálfræðinga, iðjuþjálfa, félagsráðgjafa og fleiri þar sem var einstaklingsmiðuð endurhæfing sem byggði á trausti, samfellu og jafningjastuðningi. Yfirlýsing frá Geðlæknafélagi Íslands, Geðhjálp, Þroskahjálp, Píeta samtökunum og Einhverfusamtökunum lýsir áhyggjum fagaðila að með færslu hópsins til VIRK verði ekki boðið upp á sambærilega þjónustu og hjá Janusi sem hópurinn þarf svo nauðsynlega á að halda. Telja þau það óásættanlegt að stjórnvöld skuli reyna að koma sér undan ábyrgð á þessum hópi með því að færa kostnað og veitingu á þjónustu yfir á atvinnulífið í stað þess að tryggja viðeigandi þjónustu. Með lokun Janusar endurhæfingar hefur verið slitið á eina sérhæfða úrræðið utan stofnana sem veitti geðendurhæfingu fyrir einstaklinga með einhverfu og geðraskanir. Nú hefur einstaklingunum sem þola illa breytingar, líða fyrir óvissu eftir óvissuástand mánuðum saman, verið vísað annað, til Hringsjár, þar sem vissulega starfar gott og faglegt fólk sem vinnur af heilindum. En þar er ekki starfandi geðlæknir og ekki sálfræðingar. Nú þegar mánaðaóvissu á að vera lokið fyrir þennan hóp tekur önnur óvissa við því að loka á Hringsjá í fimm vikur í sumar. Má því segja að skipt hafi verið út úrræði sem tryggði samfellu og sérfræðiþekkingu yfir í lausn sem hvorki uppfyllir fagleg viðmið né tryggir þjónustu allt árið. Við vitum það, frú forseti, að hamlandi geðrænn vandi fer ekki í frí.

Hvernig samrýmist þessi lokun, þetta stefnuleysi, yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar um að bæta geðheilbrigðisþjónustu? Og hvernig getur það talist ábyrgt að loka eina úrræði sinnar tegundar án sambærilegs valkosts fyrir hóp sem einmitt á hvað mest undir stöðugleika og aðgengi að þverfaglegu teymi og geðlæknum?