156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

úrræði í geðheilbrigðisþjónustu.

[10:20]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar til að halda áfram að vísa í yfirlýsinguna sem kom frá Geðlæknafélagi Íslands, sem ég vísaði til hérna áðan, með leyfi forseta, því þar segja þeir að það veki furðu að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður, sem hefur enga sérhæfingu í þjónustu við ungmenni með fjölþættan vanda, sé í þeirri stöðu að geta valið úr hvernig þjónustu þessi hópur á að fá. Þetta unga fólk þyrfti að hafa beinan aðgang að geðlæknum í úrræði á þeirra vegum, í gegnum heilbrigðiskerfið, ekki í gegnum VIRK. En nú er ljóst að enn er verið að móta þjónustu Hringsjár og mér skilst að þar muni koma iðjuþjálfi og sálfræðingur. Hins vegar mun enginn geðlæknir vera á þeirra vegum. Má því segja að með lokun Janusar sé verið að leggja niður geðheilbrigðisþjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp, NEET-hópinn. Ráðherra sagði hér í ræðustól að veitt yrði sambærileg þjónusta fyrir hópinn. En hvernig getur sú þjónusta sem ekki er til staðar, lokað núna í fimm vikur, talist sambærileg? (Forseti hringir.)

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún hyggist tryggja hópnum sambærilega þjónustu og hvernig ráðherra (Forseti hringir.) hyggst tryggja einstaklingum aðgengi að geðlækni líkt og þeir höfðu áður en hafa ekki í dag.