156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

úrræði í geðheilbrigðisþjónustu.

[10:22]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég taldi mig reyndar hafa svarað í fyrra svari, þar kom fram að á göngudeild lyndisraskana á Landspítala — þar sem sinnt er ungu fólki m.a. með einhverfu og slík einkenni og nokkuð sambærilegt og mörgum þeim einstaklingum sem voru hjá Janus endurhæfingu — áttum við samtöl og í ljós kom að þar er borð fyrir báru með að bæta við skjólstæðingum og mikill vilji til þess. Hjá Janusi endurhæfingu var ekki öll þjónustan undir einu þaki. Það kom alveg fyrir að skjólstæðingar væru sendir til sálfræðinga sem voru „úti í bæ“. Það er aldrei hægt að hafa tvö úrræði algerlega sambærileg en það sem skiptir máli er að skjólstæðingar fái þá þjónustu sem þeir þurfa og það er óumdeilt að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður var með 75% af samningnum, heilbrigðisráðuneytið með 25% og við hlaupumst ekki undan merkjum um að sinna þeim einstaklingum sem þurfa.