156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna.

[10:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir mikilvæga spurningu sem snýr að víxlverkun. Ég vil kannski byrja á að árétta að ákvörðun um niðurfellingu jöfnunarframlags var ákvörðun fyrri ríkisstjórnar, ekki þessarar ríkisstjórnar. En það sem er rétt og kom fram í máli hv. þingmanns er að víxlverkunin fellur mjög misjafnlega á lífeyrissjóðina og það eru sérstaklega fimm lífeyrissjóðir, og réttilega eru það, eins og hv. þingmaður nefndi, lífeyrissjóðir verkastétta sem eru líklegri til að verða fyrir örorku. Það hefur alltaf legið fyrir og komið skýrt fram í öllu mínu samtali við lífeyrissjóðina að endurskoðun jöfnunarframlagsins væri óumflýjanleg ef víxlverkunarfrumvarpið yrði að lögum. Vinnan við það fór strax af stað. Henni er núna u.þ.b. að ljúka þannig að við erum að fá yfirsýn yfir þetta. Svo fer það aðeins eftir því hvernig málinu reiðir af í þinginu hvenær ákvörðun um endurskoðun jöfnunarframlagsins mun liggja fyrir.