víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætissvar. Hæstv. ráðherra leiðréttir mig ef ég er að lesa rangt inn í þetta en miðað við þá vinnu sem er í gangi núna er kannski átakalítið holt og bolt að þetta mál — bara í ljósi athugasemda og þess að það á greinilega eftir að hnýta nokkra enda í þessu þá yrði ekki stórslys af því að málið færðist fram á haustið. Það er þá miðað við þá vinnu sem er í gangi og með hvaða hætti skynsamleg lúkning næðist þá fram þannig að lífeyrissjóðirnir haldi áfram þeirri vinnu sem greinilega er nauðsynlegt að vinnist í samstarfi við lífeyrissjóðina. Eins og mér sýnist umsagnir liggja, að þessu máli kláruðu, þá gæti það samtal að einhverju marki endað í nokkurri upplausn.