víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir aðra mjög góða spurningu. Mitt svar væri: Nei. Ástæðan er sú að það verða breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem taka gildi 1. september. Verði ekki búið að leysa víxlverkunarmálið fyrir þann tíma mun, einfaldlega vegna gildandi reglna, verða tekið fullt tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun við útreikning á örorkulífeyri hjá lífeyrissjóðum. Það myndi skerða verulega hag örorkulífeyrisþega. Því væri óheppilegt ef þetta biði með tilliti til hagsmuna þess hóps meðan frágangur jöfnunarframlagsins er eitthvað sem hægt er að ljúka á þessu ári og þá í tengslum við fjáraukalög í haust.