framlög Íslands til varnarmála.
Frú forseti. Nú er nýlokið leiðtogafundi NATO þar sem samþykkt var að stórauka framlög aðildarríkja til varnarmála sem koma að fullu til framkvæmda eigi síðar en 2035. Fram kom í máli hæstv. forsætisráðherra að framlög Íslands í þessu tilliti myndu aukast verulega, en yfir tíu ára tímabil. Mér skilst að það sé reyndar í takt við það sem aðrar þjóðir hafa undirgengist. Í grein formanna ríkisstjórnarflokkanna þriggja á Vísi í gær segir að markmiðið sé að Íslendingar verji 1,5% af vergri landsframleiðslu til að styðja við öryggi og varnir landsins á ýmsan hátt. Ég vil taka fram að það er löngu tímabært að mínu mati að Ísland taki virkan þátt í vörnum landsins. Sem herlaus þjóð geri ég þó ráð fyrir að uppbyggingin verði að mestu á borgaralegum forsendum sem þýðir þá að uppbygging verði með tvíþættum tilgangi. Má þá væntanlega fella þar undir uppbyggingu flugvalla, orkukerfis, nettenginga, netöryggis, bættrar hafnaraðstöðu eins og fyrirhuguð er í Njarðvíkurhöfn fyrir Landhelgisgæsluna og svo má lengi telja. En ef við skoðum hvað 1,5% af vergri landsframleiðslu þýðir þá er sú upphæð kannski á bilinu 60–80 milljarðar kr. á ári. Til samanburðar er áætlað að heildarútgjöld ríkisins til samgöngumála verði 73 milljarðar og að 20 milljarðar fari í húsnæðismál 2030. Útgjöld okkar í dag til varnarmála eru óljós. Því langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún sjái ekki fyrir sér að gera þurfi breytingar, m.a. á fjármálaáætlun, hvernig hún sjái fyrir sér að fjármagna þessi útgjöld og liggur okkur ekki á, þar sem umræða um fjármálaáætlun er að hefjast í þinginu?