156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

framlög Íslands til varnarmála.

[10:31]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikilvæga fyrirspurn og get tekið undir flest af því sem hér hefur verið sagt. Það er alveg rétt að mikill eða verulegur hluti af þessum 1,5% sem við ætlum að ábyrgjast, undirgangast eða sinna af góðri skyldurækni sem gott bandalagsríki mun vera á borgaralegum forsendum með tvíhliða notkun. Við þurfum auðvitað að passa okkur að gera þetta ekki að, hvað á að segja, kistu þar sem við getum sett allt inn. Við þurfum auðvitað að falla undir ákveðin NATO-viðmið og þurfum að gera þetta með skynsamlegum hætti. En ég hygg að stór hluti af þessari fjárfestingu verði eitthvað sem við hefðum nú þegar átt að vera búin að ráðast í. Við erum að tala um styrkingu Landhelgisgæslunnar, þetta gæti falið í sér styrkingu á löggæslu á landamærum og gæti líka falið í sér að efla eftirlit, leit og björgun og aðstöðu fyrir okkar bandamenn sem hingað koma. Allt er þetta eitthvað sem hæstv. utanríkisráðherra er með í vinnslu núna og það er ástæðan fyrir því að við skipuðum þverpólitíska þingmannanefnd til þess að fara yfir þessi mál, vegna þess að þetta er eitt af þeim málum sem þarf að vera full sátt um og að fólk sé á sama stað hvað varðar þessar skilgreiningar.

Varðandi fjármálaáætlun þá veit ég ekki betur en að það hafi verið rætt, kannski ekki í tengslum við fjármálaáætlun en m.a. stöðugleikareglu og annað, að við myndum taka tillit til þess að við lifum á tímum þar sem mögulega þarf að grípa til ákveðinna útgjalda þessu tengdu. Við verðum hins vegar að gera þetta með skynsamlegum hætti, ekki í einhverju óðagoti. Það var líka t.d. mjög skýrt á leiðtogafundinum í gær að öll eru meðvituð um að þó að verið sé að horfa á prósentur og krónutölur þá er það getan sem skiptir máli og samhæfingin. Við förum ekki bara út og kaupum eitthvað og byggjum eitthvað, við þurfum að gera þetta skynsamlega og já, án efa verður fjármálaáætlun á næstu árum fyrir einhverjum áhrifum.