156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[10:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hér er spurning borin upp um umræður í nefndinni og það var alveg skýrt, sérstaklega frá umsagnaraðilum, að það var mikið ákall um að við myndum ganga enn lengra í stuðningi við námsmenn og já, það var kallað eftir námsstyrkjum, það var kallað eftir hærri niðurfellingu, það var kallað eftir því að svokallað vaxtaálag á námsmenn myndi falla niður og ríkið myndi bera þann kostnað. Námsmenn vita hvað þeir vilja og lýstu veruleika sem skiptir máli. Það mátti lesa á milli línanna að Menntasjóðurinn væri hægt og rólega búinn að missa það hlutverk að vera nægilega öflugur til að tryggja það að fólk sem er með veikt bakland, ekki góðar tekjur, geti nýtt sér sjóðinn og sótt sér nám, að þetta væri meira farið að snúast um það að fólk sem hefur bara prýðilegt bakland, býr jafnvel í heimahúsi, geti tekið námslán til að eiga einhvers konar vasapening með námi. Þetta kom fram og ég tel það vera alvarlegt því að þetta er ekki markmið Menntasjóðsins. Það er vísað til þess og ráðherra hefur lýst því yfir einnig að nauðsynlegt er að ráðast í meiri heildarendurskoðun. Þetta frumvarp er viðbragð við því að lækka greiðslubyrði námsmanna sem er orðin verulega íþyngjandi. Það er í rauninni mikilvægasta skrefið varðandi það að málið verði samþykkt núna á þessu vorþingi. Hérna eru svo líka pólitískar breytingar varðandi breytingu á fyrirkomulagi, hvernig styrkjakerfið virkar, að það sé 20% niðurfelling hverja önn og 10% við lok námsferils ef honum er lokið á réttum tíma.

Ég vísa í rauninni þessum spurningum svolítið inn í framtíðarvinnu. Við fengum alls konar hugmyndir en það hefur ekki verið tekin afstaða til þeirra. En það sem var algjör samstaða um, myndi ég segja, hjá meiri og minni hluta í nefndinni var það að við tryggjum að Menntasjóðurinn uppfylli hlutverk sitt um að tryggja jafnrétti til náms.