Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta er auðvitað mjög áhugaverð umræða eins og kom fram í umsögnunum. Og ég þakka fyrir það, SU köllum við auðvitað námsstyrki á íslensku. En þetta er auðvitað áhugaverð umræða af því að svo er einmitt spurningin hvar maður stoppar. Hvatinn má ekki heldur vera þannig að það verði svona eilífðarstúdentar, að fólk festist í námi. Mig minnir að það hafi komið fram í nefndarálitinu að þetta snýst líka um það að fá fleiri út á vinnumarkaðinn, vera í verðmætasköpun og þar með að fólk festist ekki í náminu. Ein spurning sem ég velti fyrir mér er hvort það hafi komið til tals einhvers konar hámark, hversu oft þú getur nýtt þér að fá þessa 20% niðurfellingu af því að þú getur auðvitað alltaf bætt við þig og sérstaklega þegar fólk fer í framhaldsnám, en svo getur það auðvitað skipt um námsbraut. Þess vegna velti ég fyrir mér hvort það sé einhvers konar hámark. En maður vill auðvitað ekki letja fólk frá því að skipta ef það byrjar í námi en svo upplifir það: Heyrðu, þetta er ekki fyrir mig. Það má þá ekki letja fólk frá því að fara í það nám sem það vill fara í.
Ég er algjörlega sammála því og tek undir að það þarf að lækka greiðslubyrði og það er erfitt að vera nemandi, sérstaklega í dag þegar vextir hafa tekið þeim breytingum sem þeir hafa gert.
Spurningin er þá og það væri gaman að heyra hvort einhvers konar hámark hafi verið rætt, hversu oft einstaklingar geti nýtt sér niðurfellingu, og jafnvel líka hættuna á því að þegar einstaklingar eru að skipta um nám þá sé ekki verið letja þau frá því að fara í námið sem þau hafa áhuga á þegar þau uppgötva að þau byrjuðu kannski á braut sem þau vilja ekki klára.