Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir andsvarið. Ég vil bara að það komi algerlega skýrt fram að mín afstaða, og ráðherra hefur einnig lýst því yfir, er að það er mikilvægt að ráðast í heildarendurskoðun á þessu kerfi, að við rýnum fleiri þætti kerfisins til að tryggja það að sjóðurinn nái að uppfylla sín markmið. Það kom fram mjög skýr ósk um að falla frá þessu álagi á stúdenta, það ætti bara að falla á ríkissjóð en ekki að stúdentar væru samtryggingin fyrir því að tryggja það að sjóðurinn yrði ekki fyrir tjóni af þeim námslánum sem eru ekki endurgreidd. Þetta er einfaldlega bara sjónarmið sem vert er að skoða í heildarendurskoðun. En þetta væri þá bara viðbótarstuðningur í kerfinu.
Það hafa önnur sjónarmið komið fram. Það hefur verið kallað eftir hærri styrkjum, það hefur verið kallað eftir hærri niðurfellingu lána. Allt er þetta kostnaður sem er hægt að vega og meta í svona heildarendurskoðun og hægt að forgangsraða því hvaða stuðningur og styrkur myndi nýtast stúdentum best. Væri það 4%, væri það hærri niðurfelling, væri það hærri námslán? Þessu myndi ég vísa í rauninni í þessa heildarendurskoðun sem ég styð heils hugar.