156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[10:55]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir ágætissvar við mínu andsvari. Þá langar mig að reyna að þrýsta aðeins á hann og spyrja hvers vegna ekki sé gengið lengra og sett einfalt skilyrði um skilyrðislaust vaxtalaust tímabil eftir námslok, eins og kallað var eftir í einhverjum umsögnum. Í frumvarpinu er lagt til að afborgunartími námslána hefjist 18 mánuðum eftir námslok í stað 12. Það er ákveðið skref, að menn fái þarna smátíma til að anda eftir námslok. En getur verið að þetta skref sé ekki nógu langt? Það var kallað eftir lengri tíma. Ég man ekki alveg nákvæmlega í hvaða umsögnum það var, en það var kallað eftir lengri tíma, hvort það var BHM eða Landssamband íslenskra stúdenta. Það var talað um tveggja ára bið, það væru þá sex mánuðir í viðbót. Ég spyr hvort þetta komi inn í heildarendurskoðunina eða hvað við gerum í því, hverjir sem verða í nefndinni á næsta þingi.

Spurningin er þessi í seinna skiptið hjá mér: Er fjármálalegur ávinningur ríkisins að flýta afborgunum metinn hærra en raunverulegur stuðningur við námsmenn sem eru bæði að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og oft með ótryggt húsnæði, lág byrjunarlaun og sumir hverjir að byrja að stofna fjölskyldu? Auðvitað er alltaf erfitt með tímamörk, að segja nákvæmlega til um hver tíminn á að vera. En telur hv. þingmaður að 24 mánuðir séu jafnvel of lítið eða hvað?