156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[10:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir seinna andsvar. Ég tel það vera gott, það sem ég heyri í tóni hv. þingmanns er að hann vilji ganga lengra í að styðja vel við stúdenta og þar erum við sammála. Í þessu frumvarpi er verið að stíga mikilvæg skref sem liggur á að stíga. Við erum annars vegar að tala um að lækka vaxtabyrði stúdenta. Við erum hins vegar að tala um möguleika á að greiða af einu láni í einu en stúdentar sem hafa í dag námslán í báðum kerfunum eru að greiða af báðum námslánunum í einu. Með þessum breytingum geta þeir forgangsraðað og greitt af dýrasta láninu fyrst og þannig klárað það fyrr. Hér er einnig verið að lengja þennan frest úr 12 mánuðum upp í 18 mánuði og það er rétt sem hv. þingmaður segir, það var ákall um að ganga lengra. Þetta er svona bráðaaðgerð þar sem við erum að bregðast við strax því að t.d. hefur Menntasjóður námsmanna í sumum tilvikum ekki verið búinn að fá öll þau gögn sem hann hefur þurft á að halda innan þessara 12 mánaða til að vita um niðurfellingu námslána. Þarna er því líka í rauninni verið að bregðast við svona kerfislegum vanda hreinlega. En það væri hægt að taka pólitíska umræðu um hversu langt við viljum ganga í þessari heildarendurskoðun sem við höfum svolítið verið að vísa til.

Hér er verið að stíga mikilvæg skref fyrir hagsmuni stúdenta á Íslandi. Hér erum við að einfalda kerfið, bregðast við stöðunni eins og hún blasir við, en það eru líka skýr fyrirheit um að ráðast í heildarendurskoðun þar sem við þurfum bara að forgangsraða. Allt snýst þetta um forgangsröðun, hvaða skref muni nýtast stúdentum best með það að markmiði að tryggja að íslenskir stúdentar geti sótt sér menntun óháð efnahag.