Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ágæta umfjöllun um þessar breytingar. Þetta eru ekki róttækar grundvallarbreytingar en það er nú verið að þoka málum í aðeins öðruvísi farveg en verið hefur, þ.e. að breyta að hluta til þessum styrki, hvernig hann er greiddur út, og sömuleiðis verið að sníða vaxtakjörin að örlítið skaplegri mynd þannig að núna verður meiri fyrirsjáanleiki í vaxtaþróun fyrir þá sem eru með þessi námslán. Hér hefur komið fram að þetta nýja kerfi um Menntasjóð námsmanna hefur kannski ekki sætt neinni harðri gagnrýni en engu að síður hefur raunin verið sú að fólk er ekki alveg jafn mikið að taka þessi lán og stefnt var að. Það er meðal sjónarmiðanna sem liggja til grundvallar þessu frumvarpi, það er einhvern veginn verið að reyna að koma til móts við aðeins stærri hóp, en þetta er hins vegar ekkert einhlítt. Við viljum sannarlega að þeir sem hafa ekki ráð á að mennta sig öðruvísi en með námslánum hafi kost á námslánum. Við viljum hins vegar ekki, eins og ég held að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson hafi svolítið fjallað um í sinni ræðu, að þetta sé einhvers konar fínn styrkur að hafa, ágætt að taka þessi lán, en í raun og veru skilji ekki á milli feigs og ófeigs. Ég hefði haldið að svona kerfi, eins dramatískt og það hljómar, ætti að vera einmitt kerfi sem getur skilið á milli feigs og ófeigs; að gera þeim kleift að komast í nám sem eru í erfiðri stöðu en ekki til þess einhvern veginn að vera í áskrift að peningum ef þú þarft ekki á því að halda. En það er býsna snúið að finna þennan punkt og greina þarna á milli.
Hérna er talað um, og ég veit ekki hvort hv. þingmaður getur svarað því af því að við vorum að draga þetta frumvarp aftur upp úr skúffu og ég man bara ekki hvort hv. þingmaður hefur fjallað um það, en mér líður eins og það sé líka verið að rýmka skilyrði fyrir lántöku. Ef hann getur svarað því þá getur hann komið inn á það en ég held að hann þekki það ekki (Forseti hringir.) nógu vel þannig að ég þarf að spyrja aðra um það. En kannski að fá sjónarmið hv. þingmanns um þetta sem ég var að koma inn á, hvernig við getum fundið (Forseti hringir.) þetta jafnvægi um að hafa þessi kerfi fyrir þá sem þurfa þau en ekki vera að sóa peningum í eitthvað sem er ekki nauðsynlegt.