156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[11:22]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir fínasta andsvar. Ég kom nú aðeins inn á það í ræðu minni að það er þessi almenna regla að forðast að taka lán ef maður getur. Ég man eftir því í minni tíð sem námsmaður í háskóla að þá voru einhverjir sem höfðu það töluvert betur en aðrir, sem sögðu að þetta væru svo góð lán að þeir tóku lán og reyndu að ávaxta síðan peninginn, þurftu ekki að nota hann. En það er eins og hv. þingmaður segir erfitt að finna út úr þessu nákvæmlega.

Ég er alveg sammála því að við hér í þinginu, það sem við erum að semja eða það sem við erum að breyta, lögum og frumvörpum, eigum að verja ríkissjóð. Við eigum að lágmarka það sem fer út, sem er ekki þörf á. Það er kúnst að finna þessa línu og svo virðist vera að Menntasjóður hafi ekki náð að þjóna tilgangi sínum því að það eru of fáir miðað við markmið þeirra sem útbjuggu sjóðinn sem taka þessi lán. En það getur líka alveg verið kostur ef menn þurfa það ekki. Það er gríðarlega mikil atvinna í boði. Ég held að ofboðslega margir háskólanemar vinni með skólanum og það er fínt svo lengi sem það kemur ekki niður á námi þessara einstaklinga. En það er ekkert að því að vinna með námi. Ég er algjörlega sammála því sem hv. þingmaður segir að þegar endurskoðunin fer fram þá þurfum við að huga vel að því að þetta sé ekki eitthvað, ég ætla ekki að líkja því við smálán en að þetta sé ekki eitthvað sem menn bara taki og hugsi ekki alveg til enda, vegna þess að þessi lán á að þurfa að greiða til baka þótt auðvitað sé þetta styrkur líka að einhverju leyti. En þetta skiptir bara máli. Það er líka hugsunarhátturinn sem við þurfum að koma inn hérna, aðeins meiri þýskum hugsunarhætti varðandi sparnað og uppbyggingu og fyrirsjáanleika.