156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[11:24]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu tek ég undir það með hv. þingmanni að við eigum að horfa til Þjóðverja í sambandi við almenn sparnaðarráð og þá heildarhugsun. Ég held að það megi sannarlega velta því fyrir sér hvort við séum að gera það þegar hugsunin er stundum eins og brennur við í svona málum, að meðal forsendna þessa skrefs að koma námsstyrknum út eftir hverja önn — ég myndi skilja það ef það væri eingöngu gert á forsendum þess að hvetja fólk til að halda áfram, þ.e. hvatarnir gagnvart nemendunum. En í greinargerð um mat á áhrifum er fjallað svolítið um það að upphaflega var miðað við að jafnvel 90% myndu fá þennan námsstyrk, þ.e. ekki lán heldur styrk. Þetta hafi aðeins endað í 50%, nú í 70%, en að markmiðið sé að koma þessu í 90% vegna þess að það rúmast innan fjárheimildanna sem var gert ráð fyrir. Þannig að þarna er ekki verið að nota peningana og hérna er eins og menn vilji nota peningana, í ljósi þess sjálfs bara að nota peningana. Það alla vega kemur þannig út í textanum. Ég veit að hluti af þessu eru líka hvatar. En það er náttúrlega alltaf hætt við þessu í opinberum rekstri, að það sé búið að úthluta einhverju. En ég velti fyrir mér hvort við getum treyst því almennilega að þetta sé gert bara á grundvelli þess að einmitt auka hvatana eftir hverja önn. Það er svolítið erfitt að sjá fyrir sér hvernig sú breyting mun verka að klára hverja önn fyrir sig í stað þess að fá alla gulrótina við lok náms. Þetta getur held ég farið í báðar áttir. En hitt er ákveðnar efasemdir sem maður auðvitað fyllist þegar það kemur hérna fram að þetta snýst um að nýta fjárheimildir til fulls. Það getur þá varla verið bara þess vegna. Að sjálfsögðu er maður ekkert að fullyrða að svo sé en textinn gefur það að hluta til til kynna.