Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir seinna andsvar. Þetta er kannski svolítið þessi íslenska hugsun sem kristallast í orðræðunni í frumvarpinu, hvort sem hún er rétt eða ekki; það er eitthvað til staðar, klárum það, í stað þess að segja: Það er eitthvað til staðar, notum það sem við þurfum og restin fer í eitthvað annað gott. Þessi hugsunarháttur er almennt of ríkjandi, hvort sem frumvarpið ætlast til þess eða ekki. Það er alla vega þannig að frumvarpið vill að fleiri fái styrkinn. Ég sjálfur hefði viljað hafa meiri þunga við lok náms heldur en eftir hverja önn þannig að það væri ákveðinn þungi í því að menn væru að sækja sér aðeins stærri gulrót við lok náms heldur en eftir hverja önn. Þetta er eitthvað sem við ættum bara sem Íslendingar að hugsa um. Það er miklu meira hugsað um hvað menn eru að fá í laun heldur en hvað menn borga til samfélagsins. Hverjir eru nettó plús, hverjir borga meira til samfélagsins en þeir þiggja, og hverjir eru það ekki? Sú hugsun mætti miklu frekar koma inn að ef það er heimild til einhvers þá þarf ekki að nýta hana. Ég get bara tekið dæmi. Það var bílaplan við skólann hjá mér sem við vorum að ákveða hvort við ættum að stækka eða laga. Til þess var einhver fjárheimild upp á 50 milljónir. Við ákváðum að fara í lagfæringar sem kostuðu ekki helminginn af því sem var til ráðstöfunar og eftir stóðu 25 milljónir sem nýttust bara borginni til einhvers annars. (Forseti hringir.) Ég treysti henni til að nýta það. Það var ekki þannig að ég ákvæði að hafa bílastæðið merkt með gulli til að klára heimildina.