Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir góða ræðu. Það er alltaf skemmtilegt í þessum umræðum um lögin sem við erum að setja hér þegar það koma svona öðruvísi vinklar og sérstaklega frá hv. þingmönnum sem hafa mikla reynslu í þessu umhverfi. Í fyrra andsvari mínu langar mig að spyrja hv. þingmann um afstöðu hans, vegna þess að hv. þingmaður tók það fram áðan að hafa viljað ganga enn þá lengra. Það er auðvitað oft hættan þegar við förum í það að breyta lögum og það er verið að leggja eitthvað fram, það eru alltaf þessi loforð, það eru fyrirætlanir og falleg loforð um að þetta sé einungis fyrsta skrefið. En svo breytast tímarnir og allt í einu þarf að fara í heildarendurskoðun. Eins og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson kom inn á hér áðan er námskerfið orðið heldur þreytt á heildarendurskoðun og því er einmitt spurningin hvort við þyrftum ekki að hætta þessum litlu skrefum og fara í stærri. Það væri því áhugavert að heyra frá hv. þingmanni sérstaklega hvað hann á við með því að hafa viljað ganga lengra í þessu máli, vegna þess að auðvitað er ekki hægt að fara í heildarendurskoðun á því bara að breyta lánakjörum.
Já, ég kannski spyr í seinni spurningu um annað, en nám er náttúrlega ákveðin fjárfesting og því velti ég því fyrir mér þegar kemur að t.d. lánakjörum hvort það sé eitthvað sem hafi verið hægt að ganga lengra í. Vextirnir auðvitað, það var sérstaklega vitnað í það. Þetta er auðvitað mikilvægt vegna þess að þetta var sett þegar vextirnir voru heldur lágir á Íslandi og svo auðvitað gerist það núna að það á að festa þá að vissu leyti. En það breytir því samt ekki að hátt vaxtastig í þrjú ár, ef við erum að taka meðaltalið, þýðir samt að greiðslubyrðin er há og það er ekki til þess fallið heldur að hvetja fólk í nám þegar vextirnir eru háir og greiðslubyrðin er há. Því væri gaman að heyra frá hv. þingmanni hvernig hann sér fyrir sér að við hefðum getað gengið lengra.