156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[11:44]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vildi þakka hv. þm. Víði Reynissyni og hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar fyrir ágætt samstarf í þessu máli og prýðilega umfjöllun um málið. Ég tek undir með honum að það er mjög mikilvægt að við hlúum að umhverfi námsmanna og tækifærum þeirra til að komast til náms og sérstaklega að tryggja eins og kostur er á eins jöfn tækifæri og við getum. Ég hjó eftir og ég er ánægður að fá það á hreint, vegna þess að ég hafði einhvern veginn vaðið í villu hérna því það er talað um rýmkun á skilyrðum lánþega til að hljóta námsstyrk, en núna er ég búinn að átta mig á því að það er bara verið að vísa með því til tímamarkanna en ekki víðari skilyrða að öðru leyti. Ég kannski varpa því fram til hv. þingmanns hvort hann telji að þessi mál séu komin í ágætt horf í bili eða stendur til á vettvangi allsherjar- og menntamálanefndar, svo að hann þekki og af samskiptum hans við stjórnina, að fara í einhverjar róttækari breytingar á þessu strax í haust? Maður veltir því fyrir sér upp á að geta þá farið að undirbúa þau störf. Er þetta komið í einhvern farveg eða á að fara í einhverjar róttækari breytingar?