156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[11:46]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans andsvar og góða spurningu. Við höfum alla vega rætt þetta á þeim nótum og ég veit ekki annað, ég hef svo sem ekki átt í smáatriðum samtal við hæstv. ráðherra um það en við alla vega höfum horft á það þannig að við viljum láta reyna á þessa breytingu í einhvern tíma áður en það verður gengið til heildarendurskoðunarinnar. Þó svo að hún kannski hefjist einhvern tímann á næstu misserum þá er alla vega ekki, ekki sem ég veit um, stefnt að því að fara í skoðun á þessu í sumar og einhverjar breytingar í haust. Við teljum að með þessu sé stigið það skref að auka jöfnuðinn, sem er það sem við vorum að leggja áherslu á í málinu, og tækifæri gefast til að skoða málið síðar. Ég bara vona að á vettvangi hv. allsherjar- og menntamálanefndar, í þeim verkefnum sem við höfum rætt að kynna okkur, t.d. í erlendu samstarfi, á haustmánuðum, áður en þing kemur saman í haust, að sú vinna sem við getum farið í á þeim tíma varpi ljósi á t.d. hvernig aðrar þjóðir eru að vinna þessi mál og hvort það sé eitthvað þar að sækja í reynsluna. En alla vega teljum við að með þessu séum við búin að ná ákveðnum mikilvægum skrefum til að mæta þeim markmiðum sem sett voru upphaflega með lögunum. Sú skýrsla sem ég nefndi hér áðan sýndi fram á að þarna væri gat sem þyrfti að laga og við teljum okkur hafa gert það með þessu frumvarpi.