Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvarið og jú, vextirnir eru þá komnir í þetta horf að taka mið af þessu meðaltali. En áfram er spurningin um þessa 20% niðurgreiðslu, sem sagt við lok hverrar annar í stað lok námsins sjálfs. Hver voru að mati hv. þingmanns sjónarmiðin í þessari umræðu? Það var nú rætt við aðila og fengnar umsagnir og við ræddum þetta mál svolítið og ráðherra hefur líka lýst ákveðnum sjónarmiðum á því sviði. Hvert er mat hv. þingmanns á því? Er þetta til þess fallið að halda fólki betur við efnið yfir allt skólaárið, svo maður fá það fram líka, ekki síður kannski í undirbúningsskyni fyrir mína eigin ræðu hérna á eftir: Hver eru nákvæmlega sjónarmiðin? Það mætti halda því fram að stór gulrót við enda námsins gæti alveg eins haldið fólki við efnið lengi og hitt gæti náttúrlega orðið til þess að fólk falli frá námi á miðri leið. Er hugsunin að einhverju leyti sú að fólk sé að skipta um nám eða hvað? Þetta er í raun og veru bara flókin tæknileg útfærsla, hvernig þú hvetur fólk til að vera sem duglegast og drífa sig í gegnum námið, ég segi ekki kannski drífa sig, en auðvitað viljum við heldur ekki að menn séu að kúra árum saman yfir námsefninu þótt það geti verið notalegt. Það er ekki markmið ríkisvaldsins að mínu mati að halda fólki uppi í slíkum erindagjörðum heldur einmitt að virkilega fleyta fólki fram, sem við teljum nauðsynlegt líka bara fyrir hagsmuni þjóðfélagsins. Það er hugsunin. Þannig að hver eru sjónarmiðin? Erum við bara í einhverri tilraunastarfsemi með að prófa þetta?