156. löggjafarþing — 71. fundur,  26. júní 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[11:50]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir spurninguna sem er gríðarlega mikilvæg og er ákveðið grunnatriði í þessu máli sem snýr að, eins og ég hef sagt áður, þessum jöfnuði og að gefa jafnari tækifæri. Það kom einmitt fram bæði þegar við hittum ráðuneytið og vorum að fara yfir markmiðin og bakgrunninn á þessari vinnu og þessa skýrslu sem unnin var og síðan þegar við hittum gestina og þá kannski sérstaklega fulltrúa nemenda og unga fólksins sem er í þessari hringiðu námsins, þá var það þetta að stundum eru bitarnir svo stórir að menn þurfa einhvern veginn að klippa þá niður. Það að leggja af stað í fimm ára háskólanám, sem getur verið óvissuferð, og sjá það fyrir sér að geta brotið þetta niður; ef ég klára þessa önn þá fæ ég niðurfellingu og það hvetur mig til þess að fara í næstu. Markmiðið á í sjálfu sér ekki að vera að hvetja fólk til þess að lengja námið því að auðvitað er áfram gulrót við endann á þeim göngum að klára námið. Auðvitað er það líka bara almennt séð gulrót að fólk klári nám til að komast inn á vinnumarkaðinn og fara að nýta sína þekkingu og reynslu. En hugmyndin var sú að með því að brjóta þetta meira niður þá jafnvel sæju nemendur sem ættu erfitt með að horfa svona langt fram í tímann fram á að geta klofið þetta í bita með þessum hætti, eins og maður kannski gerir í verkefnastjórnun, þá brýtur maður þættina niður. Það var, held ég, grunnhugsunin á bak við þetta, að tryggja að við fengjum fólkið inn í skólana, að það legði af stað og ætti möguleikana á að taka þetta í þessum skrefum þó að hvatningin væri fyrst og fremst að ljúka náminu.