Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina yfir nefndarálitið sem veldur mér gríðarlegum vonbrigðum, sérstaklega sá kafli er lýtur að breytingartillögu sem ég lagði hér fram við 1. umræðu málsins. Ég ítreka að málið hefur einu sinni áður komið fyrir þingið og þá leit það út eins og það myndi líta út ef breytingartillaga mín yrði samþykkt, bara svo því sé haldið til haga, þó að það hafi farið í samráðsgáttina áður í alls konar umræðu. Það hefur ekki legið fyrir þinginu að draga framlag frá þeim sveitarfélögum sem eru það vel rekin og ákveða að umbuna sínum íbúum með lægra útsvarsgjaldi.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þessa setningu sem þau segja hér, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn vísar til þess sem fram kemur í frumvarpinu að líta megi svo á að með því að greiða framlög til sveitarfélaga sem ekki nýta útsvarshlutfall sitt að fullu sé sjóðurinn að niðurgreiða lækkun á útsvari þeirra sveitarfélaga.“
Nú veit ég að hv. þingmaður þekkir mjög vel rekstur sveitarfélaga og þekkir líka mjög vel jöfnunarsjóðinn. Í þessu frumvarpi sem hér liggur fyrir er í öllum greinunum tekið á því að miðað sé við fullnýtt útsvar þegar reikna á framlagið þannig að það er í rauninni inni í reikniformúlunni sjálfri. Þessi grein hér, 14. gr., 3.–5. mgr., eykur enn ofan á það og segir: Heyrðu, þau sveitarfélög sem ætla ekki að vera með fullt útsvar, það á að mínusa það frá þeim.
Nú langar mig að spyrja hv. þingmann, sem sagði hér áðan að þetta hefði áhrif á örfá sveitarfélög og það væri fyrst og fremst táknrænt hjá þessum sveitarfélögum að vera með lægri skattprósentu: Hver heldur hv. þingmaður að áhrifin verði fari þetta frumvarp óhreyft í gegn? Telur þá hv. þingmaður að þetta, sem hann talar um að sé bara einhver táknrænn hluti hjá þessum sveitarfélögum, að vera ekki að fullnýta útsvarsstofninn, muni ekki einfaldlega leiða til þess að þessi sveitarfélög fullnýti útsvarsstofninn? (Forseti hringir.) Er það raunverulegt markmið ríkisstjórnarinnar?