Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Það er auðvitað sveitarfélögum í sjálfsvald sett að samþykkja útsvar í sínu sveitarfélagi. En já, þegar horft er á tölurnar þá er ekki um umtalsverða lækkun að ræða nema í algjörum undantekningartilvikum. Ég á ekki endilega von á að þetta leiði til breytinga eða hækkunar á útsvari hjá þessum sveitarfélögum, alla vega ekki öllum, en þó er það þannig að þau tvö sveitarfélög, alla vega á höfuðborgarsvæðinu, sem hafa verið með lægst útsvar hafa verið að hækka það, ekki vegna neinna breytinga á jöfnunarsjóði heldur vegna þess að þau hafa verið með neikvætt veltufé frá rekstri og í vissum tilvikum verið með samfelldan hallarekstur frá því löngu fyrir faraldur. Þess vegna hefur bilið þarna á milli verið að jafnast en ég treysti mér ekki til að spá fyrir um það hvort tiltölulega litlar lækkanir á útsvari, sem eru einn tíundi af því sem viðkomandi sveitarfélög fá t.d. í grunnskólaframlag í gegnum jöfnunarsjóð, muni breytast vegna þessa. Ég held þvert á móti að sveitarfélögin muni bara halda sig við sína útsvarsprósentu vegna þess að þetta eru nú í þeim tilvikum ekki stóru tölurnar heldur fyrst og fremst svona einhvers konar pólitísk skilaboð út í samfélagið.