156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[11:49]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er að horfa hér á álagningarprósentu sveitarfélaga í gegnum útsvar og ég held að ef einhver nýr kæmi að málinu myndi viðkomandi geta sagt að í meginatriðum séu sveitarfélög á Íslandi að leggja á svipað útsvar, nánast það sama. 0,04 er ekki mikil breyting en það eru einhvers konar pólitísk skilaboð. Og ef við erum að tala um álögur á íbúa þá hefur verið áberandi, sérstaklega að undanförnu, að þau sveitarfélög sem hafa verið að senda pólitísk skilaboð hafa líka verið að senda pólitísk skilaboð til barnafjölskyldna um að hækka mjög mikið gjaldskrárnar á þær. Þannig að pólitísku skilaboðin eru þá þau að hinn almenni útsvarsgreiðandi fái táknræna lækkun, sem skiptir ekki stóru máli í heildarsamhenginu, en barnafjölskyldur fái töluverða hækkun, t.d. á leikskólagjöldum, þannig að það munar umtalsvert út frá ráðstöfunartekjum.

Spurning þingmannsins (Forseti hringir.) snerist síðan um áhrifin á önnur sveitarfélög. Ef þau halda sig við útsvarslækkunina (Forseti hringir.) þá hækka framlög í viðkomandi útgjaldaflokkum sem því nemur (Forseti hringir.) til annarra sveitarfélaga. (Gripið fram í.)