Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga þar sem í raun er verið að fara frá áherslu í fyrri frumvarpsgerð á að styðja við meðalstór sveitarfélög og þess í stað er meiri þungi á fjölkjarnasveitarfélög og sveitarfélög með langar vegalengdir. Þetta er svona eðlið. Í því samhengi komu fram ábendingar frá mjög barnmörgum sveitarfélögum, eins og Akranesi og Mosfellsbæ, um að þau bæru skarðan hlut frá borði í þessu. Það er einhver pólitík í því að láta eins og það snúist um Reykjavík en það snýst um þessa millistærð af sveitarfélögum með mikla þjónustu, sérstaklega við barnafjölskyldur, sem jöfnunarsjóður er ekki að fanga. Ef við ræðum um grunnskólaframlögin þá eru held ég bara allir sammála um að þau byggi á mjög gömlum grunni. Sveitarfélög sem voru lítil og vanmáttug og hétu þá og heita núna Hafnarfjörður og Kópavogur eru löngu vaxin upp úr því að taka þurfi sérstakt tillit til þeirra, en ekki til Reykjavíkur. Þau hafa alla sömu stærðarhagkvæmni og höfuðborgin, ekki síst í skólahaldi, en eru að fá 1,6 milljarða, 1 milljarð, sum sveitarfélög 1,3 milljarða og borgin ekki neitt. Þetta er einfaldlega eitthvað sem önnur sveitarfélög hafa verið að benda á að sé óskiljanlegt. Fækkun sveitaskóla kemur þarna inn. Við innleiðum reyndar nýtt 8% sérstakt tillit til stærðarhagkvæmni skóla til að reyna að brúa þetta, en þetta er mjög vandasamt. Við þurfum að gera þetta af sanngirni. Ég held að enginn sem kom fyrir nefndina hafi haldið því fram að grunnskólaframlagið væri skýrt, réttlátt og styddist við einhverja hlutlæga mælikvarða. (Forseti hringir.) Sú vinna er einfaldlega eftir og tengist dómsorði eða dómsmálum í Hæstarétti ekki neitt.