Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og auðvitað tengist það því að hér í áherslum meiri hlutans er í raun svolítið verið að halda áfram með þá orðræðu sem málaferli borgarinnar gengu út á. En þetta frumvarp fjallar fyrst og fremst um að breyta um líkan og er ákveðin viðurkenning á stöðu borgarinnar, eins og með nýbúakennsluna sem ég styð og held að sé mikilvægt, um borgarálagið sem bæði Reykjavíkurborg og Akureyri fá vegna þess að velferðarþjónustan er þar meiri. Ég held að það sé jákvætt og ákveðinn skilningur og viðurkenning á því að þessir tveir stærstu staðir, annars vegar höfuðborg landsins og hins vegar svæðisborgin Akureyri, taki til sín meiri þunga.
Það sem mig langar í seinna andsvari aðeins að velta upp er hvort fjögurra ára aðlögun sé nægjanleg. Þá er ég einmitt að horfa til staða eins og Akraness og Mosfellsbæjar og annarra slíkra staða sem hafa auðvitað verið að vaxa, alveg eins og hv. þingmaður var að benda á Hafnarfjörð og Garðabæ, og eru að vaxa. (Forseti hringir.) En það er sannarlega meiri þungi þar. Kæmi til greina að hreinlega lengja þennan tíma í sex ár?