156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[11:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mín fyrstu viðbrögð við því eru að fjögur ár séu hæfilegur aðlögunartími. Ég myndi heldur mælast til þess að við myndum stytta þann tíma sem við ætlum okkur í að endurskoða aðra þætti jöfnunarsjóðsins, m.a. til þess að koma til móts við sveitarfélög með íþyngjandi velferðarkostnað. Ég myndi mælast til þess að samtalið yrði klárað við sveitarfélögin varðandi fulla fjármögnun á málaflokki fatlaðs fólks sem skiptir t.d. Mosfellsbæ, af því að hann var nefndur hér, mjög miklu máli af m.a. sögulegum ástæðum. Þannig að ég held að við ættum að flýta för frekar en að seinka henni.