Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Við erum kannski að tala um vandamálið að það er svo gott að búa á Akureyri, ef vandamál skyldi kalla. Ég held að Akureyri sem svæðisborg og Reykjavík eigi mjög margt sameiginlegt og það eru í raun tvö mál í þinginu, annars vegar þessi litli angi jöfnunarsjóðsmálsins og síðan borgarstefnan, sem ramma þetta býsna vel inn. Jöfnunarsjóður hefur þróast, ég segi ekki fyrir tilviljanir, en hann hefur tekið mið af þeim stóru strúktúrbreytingum sem hafa verið gerðar á sveitarstjórnarstiginu. Grunnskólinn er færður yfir og þá koma inn framlög vegna grunnskólans. Málaflokkur fatlaðs fólks er færður yfir og þá koma þau framlög inn. En svo eru alls konar aðrar breytingar sem eru að verða á sama tíma. Við erum að byggja upp leikskólastig. Við erum að byggja upp frístundaþjónustu sem var ekki til árið 2000. Við erum að byggja upp skólamáltíðir sem koma í raun núna í tengslum við kjarasamninga inn í jöfnunarsjóðinn. Og síðan er þjónusta við eldra fólk, eins og þingmaðurinn nefnir réttilega, auðvitað á fleygiferð og magnið er að aukast vegna öldrunar þjóðarinnar, sem ég fagna. En það er ekki víst að verkefnum verði jafnt dreift af þeim sökum og jöfnunarsjóður er alveg blindur á félags- og velferðarþjónustu. Hann er ekki settur upp til að takast á við mismunandi þyngd í því, hvorki í tengslum við móttöku fólks sem kemur sem hælisleitendur og flóttamenn né barna af erlendum uppruna sem koma sem hluti af fjölskyldum sem koma hingað til að vinna, eða þá til að takast á við þessa öldrun. Þess vegna þarf að fara svolítið rækilega ofan í grunninn til að tryggja að það sé rétt gefið og að við náum markmiðum jöfnunarsjóðs.