Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég held að það sé reyndar mjög mikilvægt að skoða þetta með félagsþjónustuna. Við sjáum mjög hraða þróun einmitt á þessu sviði varðandi aldraða, t.d. á Akureyri þar sem maður fylgist kannski einna mest með, og mikilvægi þess að félagsþjónustan sé öflug og að við höldum fólki sem lengst heima áður en það fer inn á hjúkrunarheimili ef þörf er á því. Um 20% fólks á Íslandi eldra en áttrætt er inni á hjúkrunarheimili hverju sinni. Ætli úrræðið sé ekki í dag svona einn tíundi eða einn áttundi af kostnaði, að halda fólki heima í gegnum félagsþjónustuna í staðinn fyrir að vera í hjúkrunarrými.
Svo langaði mig rétt að koma inn á það sem kemur fram, sem er mikilvægt í tengslum við þetta og kemur fram í minnihlutaálitinu, að fram fari frekari greiningar á öðrum stöðum til að sjá þetta heilt yfir og betur heldur en var í skýrslunni frá 2021 sem snýr þá að félagslegri þjónustu og menningarlegu álagi annarra sveitarfélaga, svo sem safnsveitarfélaga eins og Akraneskaupstaðar, Ísafjarðarbæjar, Egilsstaða, Selfoss og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur. (Forseti hringir.) Er ekki nauðsynlegt að fara einmitt í frekari vinnu tengt því?