Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Mér heyrist við þingmaðurinn vera á mjög svipuðum nótum hvað þetta varðar. Ég held að við verðum bara að átta okkur á því. Og þessi mikla og góða vinna, bæði núverandi ráðherra og fyrrverandi ráðherra, við að undirbúa þessi mál og allar þessar umsagnir sem hafa komið inn endurspegla bara að sveitarstjórnarstigið er í fyrsta lagi mjög mikilvægt en líka að það er að breytast mikið og samfélagið er að breytast. Jöfnunarsjóðurinn og regluverk hans þarf að breytast þar með.
Ég sveiflast milli þess, og það kemur svolítið fram í meirihlutaálitinu, hvort við eigum að fókusera bara á einstaka málaflokka og þau verkefni eins og þau eru núna eða að horfa til þess að sveitarfélögin hafi svolítið frelsi og svigrúm til að framkvæma verkefnin eftir bestu getu og úthluta fjármunum á grundvelli lýðfræðilegra staðreynda eins og fjölda aldraðra, fjölda barna og upplýsinga um ójöfnuð og félagslegra áskorana eins og fjölda barnaverndartilkynninga eða annars slíks. (Forseti hringir.) Þetta held ég að sé verkefnið og mér finnst það spennandi. En það er líka mikilvægt og gott (Forseti hringir.) ef það næst breið og góð samstaða um það.