Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og við erum sem sagt 1. minni hluti umhverfis- og samgöngunefndar. Ég vil bara byrja á því að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir góða umfjöllun um þetta mál og fyrir góða umræðu og ég held að hún eigi eftir að verða enn líflegri.
Fyrsti minni hluti fagnar heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og tekur undir þau markmið frumvarpsins að styrkja gagnsæi, jöfnun og fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga. Hins vegar telur 1. minni hluti nauðsynlegt að gera umtalsverðar breytingar á frumvarpinu, eigi það fram að ganga.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að sveitarfélög sem fullnýta ekki heimild sína til álagningar útsvars hljóti skerðingu af framlögum úr jöfnunarsjóði. Ákvæðið skapar ranga hvata og refsar sveitarfélögum sem reyna að reka sig vel og bregðast við ólíkum aðstæðum með ábyrgri skattlagningu. Í því sambandi er vert að árétta stjórnarskrárvarinn sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga, sbr. 78. gr. stjórnarskrárinnar og sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Gagnrýni á umrætt ákvæði frumvarpsins birtist í umsögnum fjölda sveitarfélaga sem benda á að ákvæði um skerðingar vegna vannýtts útsvars hvetji til skattahækkana í stað þess að umbuna fyrir hagræði í rekstri. 1. minni hluti telur því brýnt að ákvæðið falli brott. Það kom skýrt fram í umfjöllun nefndarinnar og svörum frá innviðaráðuneytinu að útsvarsprósenta sveitarfélaga hefur ekki áhrif á greiðslur til jöfnunarsjóðs enda taka framlög til jöfnunarsjóðs mið af útsvarsstofni óháð álagningarprósentu. Það er því röng fullyrðing sem stundum er haldið fram að sveitarfélög sem fullnýta ekki heimild sína til álagningar útsvars séu að gera það á kostnað annarra sveitarfélaga. Aðstæður sveitarfélaga eru ólíkar og þess vegna er sérlega brýnt að tryggja þeim sveigjanleika til að nýta tekjustofna eftir því mati sem kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna telja fyrir bestu. Ákvæðið um skerðingu vegna vannýtingar útsvars er ekki hluti af hinu nýja líkani um tekju- og útgjaldajöfnun sveitarfélaga heldur stendur það utan við líkanið og er af pólitískum toga. 1. minni hluti telur það eðlilegri nálgun að ráðherra, eða meiri hluti nefndarinnar, skyldi sveitarfélög hreinlega í tiltekna útsvarsprósentu standi vilji þeirra til þess að öll sveitarfélög landsins leggi á hámarksútsvar í stað þess að dulbúa skattahækkunina á tæplega 90.000 íbúa landsins með þeim hætti sem gert er í frumvarpinu.
Fyrsti minni hluti fagnar því að nýtt úthlutunarlíkan taki tillit til flókinna útgjalda sveitarfélaga með stór þjónustusóknarsvæði. Slík nálgun styrkir eðlilega hvata til sameininga með því að koma til móts við fjölbreyttar og kostnaðarsamar áskoranir þeirra sveitarfélaga sem veita þjónustu langt út fyrir eigið íbúasvæði. Með þessu er dregið úr fyrri hindrunum til sameininga þar sem sameining hefur leitt til skerðingar framlaga úr jöfnunarsjóði. 1. minni hluti telur mikilvægt að kerfið virki með þeim hætti að það styrki sjálfbærar einingar og að hvatar til sameiningar séu raunverulegir en ekki veikir eða óljósir. Þarna fannst okkur skorta upp á ákveðið gagnsæi.
Virðulegur forseti. Lengi hefur verið kallað eftir breytingum á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að einfalda og auka gagnsæi í störfum sjóðsins og til að endurspegla betur breytingar á sveitarstjórnarstiginu, bæði á verkefnum og áskorunum sveitarfélaga. Með frumvarpinu um ný heildarlög fyrir sjóðinn hefur regluverkið hins vegar ekki verið endurskoðað að fullu leyti og þótt margt sé gott í því telur 1. minni hluti óheppilegt að ekki sé um heildarendurskoðun að ræða þegar verið er að setja heildarlög um sjóðinn.
Gert er ráð fyrir sérstöku jöfnunarframlagi vegna höfuðstaðarhlutverks Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar. Samkvæmt skýrslu starfshóps sem frumvarpið byggir á eru þessi sveitarfélög með sérstaka útgjaldaþörf sem fellur ekki að hefðbundnum úthlutunarlíkönum, m.a. vegna þjónustu, vegna félagsþjónustu og menningarstarfsemi. Þótt 1. minni hluti sýni þessu sjónarmiði skilning, þar sem kostnaði vegna þessa er misskipt milli sveitarfélaga, eru fleiri sveitarfélög en þessi tvö sem bera mun meiri kostnað af málaflokkunum án þess að það sé komið til móts við hann í þessu frumvarpi. Ekki verður séð að það hafi farið fram greining á kostnaði annarra sveitarfélaga vegna málaflokksins í vinnu nefndarinnar og hvetur 1. minni hluti til þess að fram fari greining á sambærilegu félagsþjónustu- og menningarálagi annarra sveitarfélaga. Vil ég þá sérstaklega nefna safnsveitarfélög eins og t.d. Akraneskaupstað, Ísafjarðarbæ, Egilsstaði, Selfoss og jafnvel sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, eins og hér hefur verið fjallað um, Mosfellsbær t.d. 1. minni hluti telur að mæta eigi sérstakri útgjaldaþörf sem þessari í gegnum úthlutunarlíkanið í stað þess að taka tvö sveitarfélög sérstaklega út fyrir mengið með fjárstuðningi án beins tillits til kostnaðar.
Að lokum bendir 1. minni hluti á sérstöðu Grindavíkurbæjar og nauðsyn þess að tryggja framhald fasteignaskattsframlags til bæjarins árið 2025 í ljósi náttúruvár og tímabundins tekjutaps sveitarfélagsins. Nái frumvarpið ekki fram að ganga verður að tryggja stuðning við Grindavíkurbæ með sérstakri tillögu þar um.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu: 3.–5. mgr. 14. gr. falli brott.
Undir þetta nefndarálit skrifa sá sem hér stendur, Ólafur Adolfsson, Jens Garðar Helgason og Ingibjörg Davíðsdóttir.
Mig langar aðeins til að hnykkja betur á nokkrum atriðum sem hér eru og þá langar mig sérstaklega að horfa til þess að við ætlum að fara að refsa þeim sveitarfélögum sem ekki fullnýta tekjustofna sína. Það er að mínu mati mjög sérstakt, og það kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans, að það sé dregið fram að það fari fram einhvers konar niðurgreiðsla fyrir þessi sveitarfélög sem ekki fullnýta tekjustofna sína, að það sé einhvern veginn verið að niðurgreiða starfsemi þeirra og í rauninni verið að borga fyrir þessa lækkun á útsvarinu. Það er bara algjörlega rangt. Ég átta mig ekki á því af hverju þessi orðaleppur er fastur inni í þessari umræðu vegna þess að alveg sama á hvað maður horfir, hvort sem maður horfir á tekjuhliðina eða útgjaldareikninga, þá er þar alltaf undir, reiknireglan byggist alltaf á því, að um sé að ræða fullnýttan útsvarsstofn. Það hefur sem sagt engin áhrif á tekjur og í raun hefur það engin áhrif á útgjöld heldur. Með breytingunni er hins vegar búin til sú leið að refsa þessum sveitarfélögum sem eru ekki að fullnýta útsvarið með því að draga af þeim til viðbótar og því framlagi verður síðan dreift á önnur sveitarfélög, sem mér finnst í rauninni mjög sérstakt. Auðvitað liggur það fyrir, alla vega í mínum huga, að þetta mun leiða til þess, óháð því sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson nefndi hér áðan, að öll þessi sveitarfélög sem hafa lægra útsvar munu bara hækka útsvarið. Hér er því í raun lítt dulbúin skattahækkun að mínu mati og eins og kom fram áðan í báðum þessum ræðum er um að ræða ansi marga sem munu þá fá skattahækkanir. Þetta eru sennilega um 83.000–90.000 aðilar sem eru að fá skattahækkun í þessu formi. En af því að ég sé hérna tvo fulltrúa Viðreisnar sem ég hefði haldið að myndu ekki endilega styðja skattahækkanir, alla vega ekki hvað þetta varðar, ætla ég að lifa í þeirri von að við náum að breyta þessu í þeim umræðum sem hér eru og í framhaldinu, að við náum einfaldlega að breyta þessu með því að taka það út úr frumvarpinu. Þetta þjónar í mínum huga engum tilgangi öðrum en að vera til skattahækkunar og verður í rauninni engum til góðs hvað það varðar.
Þó að við fjöllum kannski ekki mikið um það þá hefur verið hér til umræðu svokallað höfuðstaðarálag og þar eru undir Reykjavíkurborg og Akureyri. Nú er ég ekki að draga í efa að þar séu ekki uppi auknar útgjaldaþarfir vegna sérstakra málefna sem leggjast á þessi tvö sveitarfélög, af því að þetta eru stærstu sveitarfélög landsins. Til þeirra er verið að sækja mikið af þriðja stigs þjónustu og þessi sveitarfélög bera auknar byrðar vegna nákvæmlega þess þáttar. En það hefur jafnframt verið komið inn á það í minnihlutaálitinu að það eru fleiri sveitarfélög sem verða fyrir áhrifum, kannski ekki jafn miklum áhrifum en verulegum áhrifum engu að síður, af nákvæmlega sömu þáttum. Ég get bara tekið dæmi úr mínum heimabæ, Akranesi. Þangað safnast fólk sem þarf að nota þá þjónustu sem ekki er veitt t.d. í hinum dreifðari byggðum. Við erum með framúrskarandi heilbrigðisþjónustu á Akranesi og ég þekki það af eigin raun að fólk er að flytja t.d. af Snæfellsnesi þegar aldurinn færist yfir eða það koma upp veikindi. Þá flytur þetta fólk og mjög oft flytur það á stað, ég ætla kannski ekki að segja í næsta nágrenni en þú ert alla vega ekki tilbúinn til að búa í Reykjavík. Þú treystir þér t.d. til að keyra á Akranesi en ekki í höfuðborginni. Þetta fólk er þá einmitt að flytja til að auka öryggi sitt og bæta lífsgæði sín. Það þýðir, ætla ég að leyfa mér að segja, verulegan kostnaðarauka fyrir þau sveitarfélög sem svona háttar um, og þau eru auðvitað fleiri en Akranes. Við getum í raun tekið þessi safnsveitarfélög, eins og ég kalla það, vítt og breitt um landið. Ísafjörður er annað gott dæmi úr mínu kjördæmi, Norðausturkjördæmi, og þetta á við um fleiri bæi, t.d. Selfoss.
Ég vil segja varðandi jöfnunarsjóðinn: Af hverju erum við ekki einfaldlega með mælikvarða sem við setjum þetta undir og ákveðum þá að nota sömu viðmið gagnvart t.d. Reykjavíkurborg og Akureyri? Þá kæmi augljóslega fram í því líkani að það er aukinn þungi hjá þessum aðilum og jafnvel verulegur og greiðslan fengist þá í gegnum nákvæmlega það. Setjum upp hlutlæg viðmið um það hvað það er sem við ætlum að mæla og hvernig við ætlum að fanga þann kostnað sem augljóslega hlýst af því að vera með þessa viðbótarþjónustu og bætum henni einfaldlega við í líkaninu.
Reykjavíkurborg hefur um margt, ætla ég að leyfa mér að segja, ekki alveg notið sannmælis gagnvart því sem þar fór fram, af því að ég horfi hér á hv. þm. Dag B. Eggertsson. Það hefur verið á brattann að sækja og umræðan hefur oft verið neikvæð gagnvart Reykjavík um að þar sé ekki haldið nægilega vel á fjármálum o.s.frv. En við megum ekki láta það villa okkur sýn í öllum tilfellum. Ef við erum með hlutlæg viðmið sé ég ekkert í því sem gerir það að verkum að ekki væri hægt að nota það yfir fleiri sveitarfélög og þá erum við bara að mæla ákveðna hluti.
Ég hefði viljað sjá þetta frumvarp verða aðeins stærra í sniðum og að við værum, af því að við erum í endurskoðun, mögulega að áfangaskipta einhverjum hlutum. Ég hefði viljað sjá fleiri hluti þarna inni en það er svo sem að mínu mati ágætlega af stað farið. Það er mjög mikilvægt að regluverk jöfnunarsjóðs verði einfaldað og ég tel að það hafi verið gert að nokkru leyti þó að ég ætli ekki að reyna að halda því fram að þetta sé fyrir hvern sem er að lesa og komast í gegnum og skilja, til þess eru reiknireglurnar einfaldlega fullsnúnar. Þarna er samt verið að reyna að fanga ákveðna hluti og ég held að það sé verið að gera það með nokkrum ágætum.
Ég vil þakka fyrir góða vinnu í nefndinni hvað þetta varðar. Við fjölluðum mikið um þetta mál og það voru mikil og góð samskipti, myndi ég telja, milli nefndarmanna. Þetta mál var mikið rætt og við fengum allmarga gesti og því tel ég að vinnan hafi verið góð. Ég er í grunninn, eins og ég hef nefnt hér, ósammála meiri hlutanum og þá sérstaklega hvað varðar það að refsa fyrir að leggja ekki á hámarksútsvar en ég hlakka til að fylgjast með umræðunni í dag og vona að hún verði góð.