156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[12:25]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Ólafur Adolfsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er reyndar alveg sammála þingmanninum um að auðvitað verðum við að hafa hér heilbrigðiskerfi og félagslegt kerfi sem mætir okkar þörfum. Til þess þurfum við í fyrsta lagi að búa til verðmæti, síðan þurfum við auðvitað að skila þeim verðmætum að hluta til inn í þessi kerfi sem við teljum vera okkur til góðs. En ef menn væru sammála um það að sveitarfélögin væru í þannig verkefnum að hægt væri að kostnaðarmeta þau mjög nákvæmlega og þau væru öll að sinna þessu fyrir nákvæmlega sama prís þá skil ég vel að menn vilji kannski haga hlutunum þannig að það sé ein útsvarsprósenta og að það séu engin frávik frá því. En ég ætla bara að nefna það hér, og það á ágætlega við, að það er freistnivandi í stjórnmálum að t.d. fara í alls konar þjónustu hjá sveitarfélögum sem er ekki lögbundin en er ágæt sem kosningaloforð. Kannski er það bara einfaldlega þannig að mörgum sveitarfélögum hefur bara verið hættara við því að ganga of langt í þeim efnum. Jöfnunarsjóðnum er hins vegar ætlað að leiðrétta. Honum er ætlað að leiðrétta fyrir útgjaldaþörf og fyrir tekjumöguleika. Hann gerir það í sjálfu sér ágætlega og hann gerði það jafn vel og í rauninni betur, myndi ég telja, ef það væri hvati í því að það væri góður rekstur hjá sveitarfélögunum. Alla vega þegar verið er að reikna út útgjöld fyrir jöfnunarsjóðinn þá er alltaf reiknað út frá fullnýttum útsvarsstofni, alveg sama hvað verið er að leggja á í sveitarfélaginu. Útreikningarnir miðast því alltaf við að útsvarið sé að fullu nýtt, alltaf, og það kemur aldrei til frádráttar gagnvart öðrum sveitarfélögum, ekki einu sinni gagnvart því sveitarfélagi sem undir er hverju sinni, nema í þessu tilfelli af því að við ákváðum það.