Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Við erum oft sammála í pólitík en ekki alltaf og kannski finnst mér eðlilegt að það sé verið að horfa til þess að jafna fyrir útgjöldum sveitarfélaga, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi hér í andsvari við framsögumann málsins. Þegar við horfum t.d. á grunnskólaframlögin. Hér hefur verið nefnt að Kragasveitarfélögin séu um 90.000 manns. Þau fá sirka 4,3 milljarða í grunnskólaframlög, en Reykjavík 0. Þá spyr maður: Erum við að gera þetta á réttan hátt þegar svæði sem er með rúmlega 100.000 íbúa fær ekki neitt en svæði sem er með 90.000 íbúa fær 4,3?