Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka fyrir seinna andsvarið. Ég ætla bara að lýsa því yfir að það kom fram í ræðu minni,og reyndar kom það líka fram í ræðu framsögumanns meiri hluta nefndarinnar, að það væri e.t.v. skynsamlegt að breyta þessu. Skynsemin er þá væntanlega fólgin í því að við ætlum að búa til einhverja mælikvarða sem við getum lagt mat á. Ég nefndi t.d. höfuðstaðaálagið. Við erum að setja upp höfuðstaðaálag til að standa straum af ákveðnum hlutum og við getum alveg mælt þá hluti. Við getum mælt álagið vegna félagsþjónustunnar og heilbrigðisþjónustunnar, við getum mælt álagið vegna menningar o.s.frv. Það eru þá bara þeir mælikvarðar sem liggja undir og það er þá alveg hægt að fletja það út yfir fleiri sveitarfélög. Þess vegna tel ég t.d. að það ætti ekki að vera vandamál í sjálfu sér að mæla þetta, en við þurfum þá að búa til þá mælikvarða þannig að við getum sagt: Þetta er ástæðan fyrir því að við ætlum að breyta framlaginu til Reykjavíkurborgar.