Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir fína ræðu. Það er augljóst að hér fer maður sem hefur starfað í sveitarstjórn og hefur talsverða reynslu af sveitarstjórnarmálum og það er gott. Það sem mig langar að velta upp með þingmanninum er að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta mál fer hér í gegn, þetta var líka rætt á síðasta þingi enda er það gríðarlega stórt mál fyrir sveitarfélög í landinu að það verði gerðar breytingar á jöfnunarsjóði. Af máli þingmanns að dæma þá er það minn skilningur að það væri almenn ánægja hjá minni hlutanum með megnið af þessum breytingum nema þegar kemur að þessu ákvæði um fullnýtingu heimildar til álagningar útsvars. Að öðru leyti væru þingmennirnir nokkuð ánægðir með meginatriði málsins. Það væri ágætt að fá hans sjónarmið á því.
Mig langar líka að ræða við hann um fullnýtingu útsvars af því að það er þannig í dag að þegar sveitarfélög lækka fasteignagjöld þá lækka framlög jöfnunarsjóðs á móti og það er bara allt í lagi og það er þá bara einhver ákvörðun sem sveitarfélögin taka. Ég ætla því að leyfa mér að gera athugasemdir við þetta orðalag í nefndaráliti 1. minni hluta þar sem segir að þetta sé dulbúin skattheimta á tæplega 90.000 íbúa landsins. Fyrir mér er þetta bara val þessara sveitarfélaga, hvort þau vilja hafa lægra útsvar eða ekki. Og ég hjó eftir því líka í hans máli að það væri breiður stuðningur við að taka þetta ákvæði í burtu. Það hefur ekki verið mín upplifun af sveitarstjórnarstiginu. Ég held að megnið af sveitarfélögum landsins styðji það að sveitarfélög fullnýti heimildina sína vegna þess að sjóðnum er ætlað að jafna, ekki að ýta undir. Hann er til þess að jafna. Það væri ágætt að fá hans sýn á það. Það hefur verið minn skilningur að sveitarfélögin séu frekar á því að þetta sé gert eins og lagt er til í nefndaráliti meiri hlutans og í frumvarpinu.