156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[12:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir góða ræðu og málefnalegt og gott nefndarálit og þakka fyrir samstarfið líka í nefndinni. Ég held að það sé mikill styrkur í því að nefndin öll og Alþingi allt nálgist þetta málefnalega út frá þessum fjárhagslega raunveruleika sem sveitarfélögin eru að glíma við og það veitir ekkert af. Þetta er bara eitt skref og svo tökum við næstu. En hér var verið að velta upp og spyrja út í þessa tilfinningu mína eða spá, þ.e. ég hugsa að t.d. sveitarfélögin í Kraganum muni ekki gera breytingar á útsvarshlutfalli hjá sér nema hugsanlega þau sem eru að lækka þetta mest. Hér er verið að tala um skattahækkun á 89.000 manns. Ef við tökum bara alla útsvarslækkunina í þessum fjórum sveitarfélögum er hún samtals 724 milljónir. Ef við deilum því á 89.000 manns þá eru það 8.138 kr. á ári. Ef við skiptum því niður á mánuði eru það 678 kr. á mánuði. Ég vona að spá þingmannsins reynist rétt þó að ég spái því ekki þannig, að sveitarfélögin fari aðrar leiðir í að mæta íbúum sínum og kannski bara breyti þessu útsvari. Ég held að þessar 670 kr. á mann skipti ekki öllu máli. En hækkunin á barnafjölskyldu með tvö börn í leikskólum í Kópavogi er upp í 95.000 kr. fyrir þessi tvö börn á mánuði. Við erum að tala um 670 kr., sem er reyndar lægri tala. (Forseti hringir.) Talan á hvern íbúa í Kópavogi í útsvarslækkuninni er 230 kr. á mánuði, (Forseti hringir.) en þessi hækkun er upp á tugi þúsunda fyrir barnafjölskyldur sem eiga erfiðast með að láta enda ná saman.