Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessi svör og mér finnst umræðan undirstrika að við erum í raun ekki að ræða fjárhagslegan veruleika fjölskyldna eða einstaklinga heldur pólitískt „signal“. Við erum að tala um, bara til að setja þetta í fjárhagslegt samhengi, að Kópavogur sem varð 40.000 manna sveitarfélag 2023 er að lækka útsvar sitt um 0,04%, nánar tiltekið um 110 milljónir og 222.378 kr. Þetta eru um 2.700 kr. á hvern íbúa miðað við 40.000 manns eða 230 kr. á mánuði. Það er nú allt upphlaupið á meðan við erum að tala um fjárhagslegan veruleika fjölskyldna í Kópavogi sem hafa tekið á sig tugþúsunda hækkun bara í leikskólamálum. Það er alvöruumræða um byrðar og hvernig þeim er rétt skipt. Ég ætla ekkert að gera lítið úr þessari útsvarslækkun og ég ætla ekki að hafa mikla skoðun á henni (Forseti hringir.) af því að hún skiptir ekki miklu máli nema sem einhvers konar pólitísk hundaflauta. (Gripið fram í.)