Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Já, ég ætlaði að byrja á því að segja hvað það væri gott að hv. þm. Ólafur Adolfsson hefði verið hér á undan mér því að hann var svo yfirvegaður allur en ég er svo æst. Ég var að reyna að nota orðræðu kollega míns, hv. þm. Ólafs Adolfssonar, til að róa mig en hv. þm. Degi B. Eggertssyni tókst algerlega að æsa mig upp aftur og ég geri því ráð fyrir mjög skemmtilegri umræðu hér í dag. Ég er alveg tilbúin að fara í samtal við Dag B. Eggertsson um sveitarstjórnarmál og leikskólamál sérstaklega. Það væri mjög áhugavert efni, hvað Kópavogur er að standa sig miklu betur en höfuðborgin Reykjavík; hvað þjónustan þar er miklu betri en í Reykjavík; hvar fólk getur raunverulega stólað á leikskólann og mætt með börnin sín á morgnana en fær ekki stöðugt símtal um að barnið þurfi að vera heima í dag því að Reykjavíkurborg getur ekki mannað leikskólana sína.
Virðulegur forseti. Í ljósi þess að það er ekki beint umræðuefnið hér núna ætla ég að draga andann djúpt, en í seinni ræðum er ég svo sannarlega tilbúin að taka það til umræðu — af því að þetta er bara mín fyrsta ræða, treystið því, ætla ég að draga andann djúpt og anda í kviðinn vegna þess að þetta mál skiptir í alvöru rosalega miklu máli. Á síðustu dögum höfum við verið að ræða veiðigjöldin sem eru í mínum huga algjör umbylting á grunnatvinnuvegum okkar. Þar erum við að tala um í það minnsta 70–80% hækkun á grunnatvinnuveginn. Þetta mál hér snertir alla kjósendur í mínu kjördæmi; og ég horfi hér á einn kollega í mínu kjördæmi frá Viðreisn. Þetta snertir alla íbúa í Suðvesturkjördæmi. Af hverju? Vegna þess að hér er verið að búa til hvata til sveitarfélaganna til að hækka útsvar. Þá kann einhver að segja: Bíddu, það eru ekki öll sveitarfélögin í Suðvesturkjördæmi sem eru með lægra útsvar en hámarksprósentan? Nei, rétt. Því miður er það svo að Mosfellsbær hefur farið upp í hámarkið. En eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson, framsögumaður meirihlutaálitsins, kom inn á áðan þá verður Mosfellsbær mjög illa úti verði þetta frumvarp að lögum. Þetta mun þýða 250 milljónir á ári sem Mosfellsbær fær í minni framlög. Ástæðan fyrir því að Mosfellsbær er að fá þessi framlög í dag er einmitt söguleg, það er vegna fjölda fatlaðra í sveitarfélaginu. Þannig að já, þetta hefur líka áhrif á heimasveitarfélagið mitt Mosfellsbæ þó að það tengist ekki beint því sem ég ætla fyrst og fremst að gera að umræðuefni mínu hér.
Virðulegur forseti. Ég get ekki horft öðruvísi á þetta en að skattakrumla ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sé hér að seilast í alla vasa. Það er ekki bara ráðist að grunnatvinnuveginum okkar, sjávarútveginum, heldur hafa líka verið boðaðar hækkanir á aðrar atvinnugreinar. Það er ráðist að fjölskyldunni en fyrirhugað er að afnema samsköttun hjóna milli þrepa. Nú, tölum ekki um kílómetragjaldið sem margir hafa áhyggjur af. Hér er líka verið að fara inn í sveitarfélögin, sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga, og vera með raunverulegan hvata í löggjöf hjá ríkinu til kjörinna fulltrúa í sveitarfélögum landsins til að hækka útsvar.
Virðulegur forseti. Hér hefur verið rætt um að þetta mál, sem er að mörgu leyti mjög vel unnið — það var mjög góð nefnd sem vann að þessum málum, fulltrúar frá sveitarfélögum vítt og breitt um landið skiluðu niðurstöðu og þetta hefur farið í gegnum alls konar þeytivindur, alls konar. Þess vegna leit málið eins og það barst þinginu á síðasta kjörtímabili miklu betur út. Þar var búið að ná pólitískri sátt. Mér finnst alveg ástæða til að nefna það hér í þessum sal, vegna þess að uppi er mjög mikill ágreiningur og staðan í þessu þingi er með allra versta móti, að það er stundum ástæða fyrir meiri hlutann, jafnvel þó að hann telji sig hafa fleiri atkvæði í þingsal, að teygja sig og hlusta á sjónarmið minni hlutans. Þannig lá frumvarpið fyrir þinginu síðast. Ég get alveg farið að ræða höfuðborgarálagið. Ég get alveg velt upp rökum á móti höfuðborgarálaginu. Ég get það alveg. Það eru rök á móti höfuðborgarálaginu. Önnur sveitarfélög segja: Heyrðu, við borgum fyrir heimilislausa í þessi úrræði. Og eigum við að tala um fasteignaskatta sem höfuðborgin Reykjavík fær frá ríkinu? Öll stjórnsýsla landsins er staðsett í höfuðborginni og meira og minna allar stofnanir. Auðvitað er það líka tekjugrunnur fyrir höfuðborgina Reykjavík. En ég ætla ekki að ráðast að höfuðborgarálaginu að þessu sinni vegna þess að ég taldi að við værum búin að ná ákveðinni sátt. Hún snerist um þetta: Já, höfuðborgarálag og þá greiðum við líka höfuðborg Norðurlands, Akureyri, aukið framlag. En mér finnst það fram úr öllu hófi að ganga svona á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna, að vera svona brútal, nú man ég ekki íslenska orðið yfir það, í því að hvetja sveitarfélögin til að hækka útsvarið sitt. Nú ætla ég að ítreka það sem ég sagði í 1. umræðu um málið: Í öllum þessum lagabálki, í öllum greinum er lúta að því að reikna jöfnunarálagið, útgjaldaálagið, er horft til þess að viðkomandi sveitarfélög myndu fullnýta skattstofninn sinn til útsvarsins. Það er vitleysa að halda því fram að önnur sveitarfélög væru með einhverjum hætti að greiða fyrir lækkun útsvars í vel reknum sveitarfélögum, í sveitarfélögum sem hafa ákveðið að kjósa fulltrúa í sína sveitarstjórn sem vilja skilja meira eftir í vasa vinnandi fólks. Það er bara vitleysa. Það er ekki hægt að standa hér og segja að það sé raunverulega þannig því að í öllum útreikningum er horft til þess að viðkomandi sveitarfélag myndi fullnýta útsvarið sitt. En í ofanálag er hér, með 14. gr., 3.–5. mgr., lagt til að ef sveitarfélagið fullnýti ekki heimild sína verði framlögin lækkuð eftir á.
Virðulegur forseti. Þetta er bara prinsipp hjá mér. Þetta er algert prinsipp hjá Sjálfstæðisflokknum. Við vorum meira að segja búin að ná samkomulagi hér í stjórninni með Framsókn og Vinstri grænum og mér er fyrirmunað að skilja að flokkar sem gengu hér fram fyrir síðustu kosningar og lýstu því yfir að þeir vildu ekki hækka skatta á fjölskyldur eða vinnandi fólk í landinu skilji í alvöru ekki þetta prinsipp og taki ekki undir þá pólitísku sátt sem búið var að ná um þetta mál síðast.
Virðulegur forseti. Bara svo að við minnum okkur á það þá sagði núverandi forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, í kosningasjónvarpinu fyrir síðustu kosningar: Ég vil vera alveg skýr. Ég vil vera alveg skýr með það að Samfylkingin ætlar ekki að hækka skatta á vinnandi fólk í landinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hæstv. utanríkisráðherra, sagði: Við í Viðreisn erum alveg skýr á því að við ætlum ekki að auka skatta á venjulegt fólk, á almenning, í landinu. Það sem þetta frumvarp þýðir er skattur, aukinn skattur, á venjulegt vinnandi fólk í landinu, á öll heimili í Suðvesturkjördæmi, á venjulegt fólk. Virðulegur forseti, ég sé að hér bara hverfur fólk úr stólunum. Það er greinilega ekki mikill áhugi á að taka þetta samtal við mig. Ég óska samt eftir því að einhver komi í andsvör og ég óska sérstaklega eftir því að einhverjir þingmenn úr mínu kjördæmi, Suðvesturkjördæmi, komi og taki þetta samtal því að þetta bitnar á öllum íbúum í Suðvesturkjördæmi, öllum íbúum.
Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið hér í umræðunum áður þá verða um 84.000 skattgreiðendur fyrir skattahækkun ef þetta frumvarp verður samþykkt óbreytt. Ég ítreka aftur að ég lagði fram breytingartillögu við 1. umræðu í þessu máli. Ég hafði svo miklar væntingar um að hv. umhverfis- og samgöngunefnd myndi ákveða að gera þessa breytingartillögu að sinni. Eins og ég rakti áðan þá var það einmitt niðurstaða pólitískrar þeytivindu að frumvarpið var lagt þannig fram síðast. Þá hefði getað myndast sátt um þetta mál. Þá hefðum við getað afgreitt þetta mál í sæmilegri sátt á þessu þingi. En nei, meiri hlutinn ákvað að taka það ekki til sín. Við skulum aðeins — því að hér hefur verið talað um pólitíska hundaflautu og fyrrverandi borgarstjóra í Reykjavík er mjög umhugað um að velta fyrir sér stöðunni í Kópavogi. Þá ætla ég bara að telja hér upp þetta venjulega vinnandi fólk, í hvaða sveitarfélögum það býr, sem þetta myndi hafa áhrif á. Það fólk er vissulega í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Kjósarhreppi, Skorradalshreppi, Hvalfjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppi, Fljótsdalshreppi, Vestmannaeyjum, Grímsnesi og Grafningshreppi. Þetta er venjulegt fólk um land allt sem mun verða fyrir skattahækkunum verði þetta frumvarp að lögum að óbreyttu. Ég ætla líka að ítreka það sem kom fram í ágætu andsvari hér áðan hjá hv. þm. Guðbrandi Einarssyni. Ég er að sjálfsögðu fylgjandi velferðarkerfi. Sjálfstæðisflokkurinn stendur með öflugu og góðu velferðarkerfi. Ég vil hafa góða spítala, góða þjónustu við eldri borgara, góða þjónustu við fatlaða, góða grunnskóla og góða leikskóla, allt þetta. Ég ætla að leyfa mér að segja að þau sveitarfélög sem ég taldi hér upp, og sveitarfélög í mínu kjördæmi, standa sig almennt mjög vel í að veita einmitt þessa þjónustu sem er á þeirra herðum, mjög vel. Þannig að þetta frumvarp er ekkert spurning um það að við séum einhvern veginn á móti velferðarþjónustu. Það bara snýr ekki að því. Þetta frumvarp og jöfnunarsjóðurinn snýr að því — hlutverk jöfnunarsjóðsins er að jafna mismunandi útgjaldaþörf. Og hvað veldur útgjöldum? Ja, það eru fatlaðir einstaklingar sem þurfa aukna þjónustu. Það eru leikskólabörnin okkar. Það eru grunnskólabörnin okkar. Þessir þættir kosta sveitarfélögin fjármuni. Það á að jafna þessa útgjaldaþörf. Það er jafnframt tekið fram, svo að ég ætla að vera alveg heiðarleg með það, að það stendur líka „og skatttekjum sveitarfélaganna“, alveg rétt. Ég viðurkenni að það er ástæða til að jafna út frá tekjum sveitarfélaga. Ég tek undir það, ég þekki það ósköp vel. Ég skil það mjög vel. Eigum við að taka Garðabæ sem dæmi: Möguleiki sveitarfélagsins, Garðabæjar, til að afla tekna í gegnum útsvar eru umtalsvert meiri en Raufarhafnar sem nú tilheyrir — ætlar enginn að hjálpa mér — (Gripið fram í: Norðurþing) — Norðurþingi, takk fyrir. Það er ólíku saman að jafna. Þess vegna tekur þetta frumvarp tillit til þessara þátta. Það tekur tillit til þessara þátta. En í einhverju samtali sveitarstjórnarfulltrúa sem sátu í þessari vinnunefnd fannst einhverjum það skynsamlegt að bæta ofan á aukalega að ef sveitarfélög fullnýti ekki heimild sína til álagningar útsvars skuli lækka framlög jöfnunarsjóðs árið eftir til viðkomandi sveitarfélaga, sem getið er um í 4. gr., og þetta heldur áfram. Ég treysti því að hv. þingmenn þekki þessa grein ágætlega. Væntanlega hafa sjónarmiðin þarna verið þessi: Ja, þessi ríku sveitarfélög, eins og oft er sagt, þurfa ekkert að fá neitt úr jöfnunarsjóði. Þá verður meira eftir fyrir hin sveitarfélögin. Ég veit ekki hvort þetta eru einhverjar glæður út af forvera jöfnunarsjóðs og ég veit að hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir það í framsöguræðu sinni að einu sinni var þetta svona fátækrasjóður, fyrir fátækustu sveitarfélögin. En fyrirgefið, þetta er það ekkert í dag. Þetta er til að jafna útgjöld vegna þess að við höfum treyst sveitarfélögum í landinu til að veita mikilvæga þjónustu. En ég held að þegar fólki datt í hug að það væri sniðugt að setja þetta inn hafi það ekki áttað sig á áhrifunum, hafi það ekki áttað sig á hvaða áhrif þetta myndi hafa. Ef það verður nú veruleikinn, sem ég tel, að langflest, ef ekki öll, sveitarfélögin myndu hækka útsvarið sitt þá er ekkert meira til fyrir Fjallabyggð, Múlaþing eða einhver önnur sveitarfélög því að sjóðurinn er bara af ákveðinni stærð. Það verður þá bara minna til að úthluta til hinna. Alveg eins og það ákvæði að setja á höfuðborgarálagið, þ.e. að greiða Akureyri og Reykjavík sérstaklega fjármuni, tekur úr sjóðum og það þýðir að það er minna fyrir hin sveitarfélögin. En alveg eins og ég fór yfir hér áðan er ég tilbúin til að sætta mig við það vegna þess að ég hélt að við gætum náð einhverri samstöðu, þvert á flokka, þvert á landið, með því að horfa til þessara sjónarmiða. En eins og frumvarpið liggur fyrir núna, ef ekki er tekið tillit til þessarar breytingartillögu, þá er ekki hægt að ætlast til þess að hér verði einhvers konar pólitískt samkomulag um eitt né neitt, því miður.
Virðulegur forseti. Ég gæti líka haldið áfram og hneykslast á því sem sagt var hér áðan í andsvörum. Pólitísk hundaflauta — það er pólitísk hundaflauta að kjörnir fulltrúar í sveitarfélögum ákveði að lækka útsvarið, hafi þá lífssýn að einstaklingurinn eigi að mestu að verja sínu sjálfsaflafé sjálfur. Þau sveitarfélög sem hér eru undir veita frábæra þjónustu, frábæra velferðarþjónustu, frábæra skólaþjónustu. Ég horfi hér á bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi, hv. þingmann. Ég efast ekki um að það er góð þjónusta á Seltjarnarnesi en samt hefur verið ákveðið að vera með lægra útsvar. Trekk í trekk hafa íbúar á Seltjarnarnesi kosið þann flokk til valda sem hefur einmitt staðið fyrir það, alveg eins og í hinum sveitarfélögunum þar sem útsvarið er lægra. Það kristallaðist hér í andsvörum mínum við hv. þm. Dag B. Eggertsson, þegar hann flutti meirihlutaálitið, að pólitísk sýn okkar er ólík. Það þarf engan að undra. Ég er í Sjálfstæðisflokknum og hv. þm. Dagur B. Eggertsson í Samfylkingunni. Dagur B. Eggertsson er vinstri maður, ég er hægri kona. Það þarf því engan að undra að við séum ósammála um þessa sýn. Það að honum finnist það með einhverjum hætti táknrænt að sveitarfélög eða bara ríkið, ég veit ekki, ákveði að lækka skatta — mér finnst það ekki. Mér finnst það mikilvægt. Mér finnst mikilvægt að ráðandi öfl á hverjum tíma reyni að halda skattbyrðinni í algeru lágmarki. En, virðulegur forseti, má ég þá minna aftur á það sem fulltrúar þessara flokka sem sitja nú í ríkisstjórn sögðu fyrir kosningar alveg skýrt: Ekki hækka skatta. Alveg skýrt: Ekki hækka skatta.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort ég á að segja að hér sé um táknræna vinstri aðgerð að ræða. En ég er bara, fyrir utan það að vera svo pólitískt ósammála þessari nálgun og þeim staðhæfingum sem haldið er fram í meirihlutaálitinu, um að það sé með einhverjum hætti verið að niðurgreiða til þeirra sveitarfélaga sem eru með lægra útsvar — ég held til að mynda að hv. þm. Dagur B. Eggertsson, og þeir þingmenn sem hafa grafið sig ofan í það regluverk sem hér liggur fyrir, viti það og átti sig alveg á því að í reikniformúlunni er miðað við hámarksútsvar. Það er á ábyrgð hvers og eins sveitarfélags ef það ákveður að fara ekki í hámarksútsvar. Það er þeirra ábyrgð og þá fá þau aðeins minna. En að leggja til frádrátt í ofanálag er hræðilegur hvati til að ýta sveitarfélögunum upp í hámarksútsvar. Mér fannst hér í andsvörum áðan eins og hv. þingmönnum fyndist í raun bara eðlilegt að sveitarfélögin væru almennt í hámarksútsvarsprósentu. Þá velti ég líka fyrir mér: Af hverju gengur þá ekki þessi ríkisstjórn bara alla leið? Af hverju erum við með lög sem heimila sveitarfélögum að innheimta mismunandi upphæð í útsvar, mismunandi prósentu í útsvar, ef það er sýn þingmanna meiri hlutans hér að það fari bara best á því að það rukki bara allir það sama, að það séu allir með 14,97% í útsvar. Það er hægt að breyta því í lögum. Ég mun sannarlega vera á móti því en mér finnst það í rauninni skýrari og einfaldari skilaboð en þessi hvati sem hér er lagður til. Fyrir utan það held ég að það felist í þessu ákveðin blekking um að það verði einhvern veginn meira til fyrir hina. Ég veit ekki hvort þetta er svona eins og hagfræðikenningar hæstv. ráðherra Ingu Sæland, að það sé bara einhvern veginn hægt að hækka skatta og svo verði bara til meiri peningar. Ég bíð enn eftir því að hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra, sem bæði eru menntaðir hagfræðingar, komi aðeins og útskýri þessa frábæru hagfræðikenningu Ingu Sæland, sem hér er kannski að verða að hagfræðikenningu þessa meiri hluta.
Virðulegur forseti. Að þessu sögðu hef ég nær eingöngu einblínt á þessa 14. gr. og mér er mikið niðri fyrir. Mér er mikið niðri fyrir vegna þess að ég veit að þetta hefur áhrif á alla íbúa í mínu kjördæmi. Ég held líka að þetta sé ósanngjarnt. Hér sagði einhver áðan, ég held að það hafi verið hv. þm. Dagur B. Eggertsson, að þetta væri bara eitt skref í því að breyta reglulíkani jöfnunarsjóðs. Ég mun örugglega fara yfir það í síðari ræðum og ég tek undir að það þarf að breyta þessu reiknilíkani öllu saman. En það sem hér liggur fyrir okkur er vont skref. Þetta er mjög vont skref sem bitnar á sveitarfélögum. Þar af leiðandi mun það bitna á venjulegum fjölskyldum, venjulegu vinnandi fólki, í þessu landi. Ég hef lokið máli mínu að sinni því að tíminn er útrunninn en ég hef margt meira að segja um þetta ágæta mál og óska eftir því að forseti setji mig aftur á mælendaskrá.