156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[13:08]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki nákvæmlega á því hver spurningin var hér, en útgjaldaþörf sveitarfélaga er mjög misjöfn. Ég er sammála því og þess vegna er ég mjög sammála því sem stendur í frumvarpinu um að þetta sé til að jafna mismunandi útgjaldaþörf. Ég er líka mjög sammála því að í þeim greinum, hvort sem við erum að tala um jöfnunarþörf varðandi rekstur grunnskóla, málefni fatlaðra eða aðra þætti, sé líka horft til þess að þegar verið er að reikna út fyrir hvert sveitarfélag er gert ráð fyrir að þau fullnýti útsvarið sitt, þannig að það er á þeirra eigin ábyrgð ef þau gera það ekki. Það sem ég er að segja er að ég held að regluverkið eins og það liggur hérna fyrir, fyrir utan 3.–5. mgr. 14. gr., sé mjög sanngjarnt. En með þessari 14. gr., 3.–5. mgr., verður það ósanngjarnt og þá hefur það ranga, óeðlilega og leiðinlega hvata í för með sér. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að útgjaldaþörfin sé misjöfn. Hún er misjöfn milli sveitarfélaga. Ég hygg að hv. þingmaður hafi verið að horfa sérstaklega til framlaga vegna reksturs grunnskóla og þeirrar staðreyndar að Reykjavíkurborg sé ekki að fá framlag, ef ég skil hv. þingmann rétt, og mér finnst allt í lagi að skoða það. Ég heyrði sögu um hvernig þetta varð til, það var svolítið miðað við Reykjavík og miðað út frá því. Mér finnst alla vega mikilvægt að nú sé verið að jafna á öll sveitarfélög varðandi nýbúa í grunnskólum. Mér fannst ósanngjarnt að Reykjavíkurborg ætti ekki að geta leitað í þá sjóði.

Að því sögðu þá þekki ég sæmilega regluverk jöfnunarsjóðs eins og það er í dag. Ég segi sæmilega því ég held að það séu sirka þrír til fjórir á landinu öllu sem geta raunverulega reiknað út hvað það þýðir, því að það er mjög flókið. En þetta er plástrað kerfi, margplástrað kerfi. Ég velti líka fyrir mér: Á einhverjum tímapunkti er bara er búið að færa málaflokkinn grunnskóla yfir á sveitarfélög og þau þurfa að standa undir því. (Forseti hringir.) Hér er verið að jafna út frá grunnskólaframlaginu og ég held að það sé gott. Ég get ekki séð neitt í áliti meiri hlutans um að vilja breyta því og setja Reykjavíkurborg inn. (Forseti hringir.) En ef það er tillaga frá hv. þingmanni skal ég alveg taka það samtal alla vega.