156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[13:10]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar svar. Jú, ég held að það sé vilji nefndarinnar að halda áfram með endurskoðun á lögunum um jöfnunarsjóðinn af því að þrátt fyrir að það sé verið að stíga ákveðin skref þá ná þau ekki utan um alla þá þjónustu sem sveitarfélögin veita. Við erum búin að vera í mörg ár — hv. þingmaður nefndi að fyrri ríkisstjórn hefði verið með málið en hún kláraði nú samt ekki málið. Ég vil kannski bara í ljósi þess að mér líður svo vel þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir að hafa farið með þetta mál af stað. Það skiptir okkur máli sem búið var að gera, það gerði okkur auðveldara fyrir í nefndinni að halda áfram með málið. Okkur greinir auðvitað á í einstaka tilvikum eins og hefur komið í ljós í ræðu hv. þingmanns. En ég velti þá fyrir mér: Erum við þá sammála um það, burt séð frá þessum ágreiningi um þetta tiltekna mál, að við höldum áfram endurskoðuninni á sjóðnum? Við ræddum mikið t.d. um stöðu tónlistarskólanna og ábendingin er að það verði horft til fjárlaga hvað það varðar. En þarf ekki bara að halda áfram og reyna með einhverjum hætti að ná utan um þennan jöfnunarsjóð? Mér finnst sjálfum svolítið skrýtið að allir borgi sömu upphæð í tekjuskatt en svo borgum við misjafna upphæð í útsvar. Svo eru sum sveitarfélög með eitthvert sleifarlag í þjónustunni sem bitnar síðan á öðrum sveitarfélögum. Tökum félagslegt húsnæði sem dæmi. Reykjavíkurborg sinnir því miklu betur heldur en öll önnur sveitarfélög á Íslandi og svo eru önnur bara með eitthvert sleifarlag í því. Ég held að við þurfum að horfa á alla þessa hluti ef jöfnunarsjóðurinn á að virka sem jöfnunarsjóður.