156. löggjafarþing — 72. fundur,  27. júní 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[13:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tek undir það hafandi verið lengi á sveitarstjórnarstiginu að það er mjög gaman að ræða þessi mál og það væri óskandi að við ræddum oftar sveitarstjórnarmál hér í þingsal og gæfum því gott rými. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta og ég heyri að jafnaðarmannahjartað hugsar svona. Mitt hjarta gerir það ekki vegna þess að það á að jafna útgjaldaþörf og mér finnst það ákveðin svik við aðra íbúa í þessu landi sem greiða sína skatta og skyldur að ákveðið sveitarfélag, þar sem er fullt af grunnskólabörnum og fötluðu fólki og annað, eigi ekki að fá greitt úr jöfnunarsjóði vegna þess að þar sé lægra útsvar. Ég heyri alveg hvert hv. þingmaður er að fara og ég veit alveg hverjar hafa verið tillögur Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Seltjarnarness um að hækka útsvarið en ég sem þjóðkjörinn fulltrúi á Alþingi segi: Það er mál kjörinna fulltrúa á Seltjarnarnesi. Það er mál íbúa á Seltjarnarnesi þegar þeir ganga til sveitarstjórnarkosninga að kjósa þá sem þeir treysta best til að reka sitt sveitarfélag af skynsemi og sanngirni. Ég hef bara horft á íbúa á Seltjarnarnesi gera það trekk í trekk og ég veit ekki betur en að sveitarfélagið Seltjarnarnes sé bara ágætlega rekið sveitarfélag með góða þjónustu.

Að því sögðu þá ítreka ég það við hv. þingmann, svo að það sé öllum ljóst, að í útgjaldajöfnuninni er gert ráð fyrir hámarksnýtingu útsvars. Þegar verið er að reikna grunnskólaframlagið, og verið að reikna það út hve grunnskólabörnin eru mörg og hve margir búa á Seltjarnarnesi, er gert ráð fyrir að Seltjarnarnes myndi nota hámarksútsvar og þannig er framlagið til grunnskóla reiknað, þannig að það er bara ekki rétt að halda því fram að önnur sveitarfélög séu með einhverjum hætti að greiða niður lægra útsvar á Seltjarnarnesi. Hitt er aukaákvæði sem er greinilega sprottið af þessari hugsun hv. þingmanns að það sé ósanngjarnt að það komi eitthvað út úr einhverju sem heitir jöfnunarsjóður óháð því að það eigi að vera til að jafna útgjöldin ef viðkomandi sveitarfélag er ekki með hámarksútsvar. (Forseti hringir.) Þá segi ég: Er þá ekki bara hreinna að Samfylkingin og þá væntanlega hæstv. ríkisstjórn, ef þetta er niðurstaðan, gangi hér fram og segi (Forseti hringir.) bara: Eitt útsvar á öll sveitarfélög. Þið eigið ekkert að vera að velja. Nýtið þið bara útsvarið að hámarki, veitið góða þjónustu fyrir allan þennan pening og kjörnir fulltrúar sjá bara (Forseti hringir.) til þess að eyða þeim peningum sem koma úr vasa skattgreiðenda.